11
.
May
2026

Vel heppnuð Nýsköpunarvika

Iceland Innovation Week fór fram dagana 27.–30. apríl síðastliðinn og tókst einstaklega vel. Fjöldi gesta sótti viðburði vikunnar, bæði í aðaldagskrá og á fjölmörgum hliðarviðburðum sem haldnir voru víðs vegar um borgina – auk viðburðar í Hvammsvík. Stemningin var lífleg og var fjölbreytt dagskrá í boði með áherslu á fræðslu, tengslamyndun og innblástur fyrir frumkvöðla og fjárfesta. Aðaldagskráin fór fram í Austurbæ að þessu sinni.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók virkan þátt í vikunni og stóð meðal annars að viðburðinum „Frá kynningu að fjárfestingu – hver fær já og af hverju?“ í samstarfi við FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu. Þar komu saman frumkvöðlar og fjárfestar til að ræða hvað skiptir máli þegar kemur að fjárfestingum í nýsköpun og hvernig frumkvöðlar geta aukið líkurnar á árangri.

Kría er meðlimur í Framvís, samtökum engla og vísifjárfesta í nýsköpun, sem hélt morgunverðarfundinn The Breakfast Brief - Ask a VC Anything þar sem frumkvöðlum gafst kostur á að hitta fjárfesta, spyrja spurninga og fá hagnýt ráð um fjármögnun og uppbyggingu fyrirtækja.

Að lokum stóð Kría, í samstarfi við Nordic Ignite, fyrir viðburðinum The Unicorn Hour þar sem frumkvöðlar og fjárfestar komu saman í litríkri og skemmtilegri veislu með leikjum, tengslamyndun og léttu yfirbragði.

Við viljum færa Melkorku Sigríði Magnúsdóttur og Eddu Konráðsdóttur, stofnendum Nýsköpunarvikunnar og samstarfsfólki þeirra, innilegar hamingjuóskir með einstaklega vel heppnaða viku og hlökkum til að taka þátt á ný á næsta ári. Eins þökkum við öllum þeim sem komu á viðburði Nýsköpunarsjóðsins Kríu

Næsta Nýsköpunarvika verður haldin dagana 27.–28. apríl 2027 og hlökkum við til að sjá ykkur þar.

Hér má sjá svipmyndir frá Nýsköpunarvikunni

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.