29
.
April
2026

Frá kynningu að fjárfestingu – Hver fær já og af hverju?

Frumkvöðlar og fjárfestar í panel

Fullt var út úr dyrum í Íslandsstofu þann 27. apríl síðastliðinn þegar Nýsköpunarsjóðurinn Kría í samstarfi við FKA, félag kvenna í atvinnulífinu, stóð fyrir viðburði í tengslum við Iceland Innovation Week. Viðburðurinn bar yfirskriftina Frá kynningu að fjárfestingu – Hver fær já og af hverju?

Fundarstjóri var Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga Nýsköpunarsjóðsins Kríu en Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður nýsköpunarnefndar FKA bauð öll velkomin áður en Edda Lára tók við stjórninni af sinni einskæru snilld.

Hrönn Greipsdóttir steig svo á svið og fór yfir áhugaverðar tölur úr nýrri skýrslu sem Framvís var að gefa út sem og nýlegar tölur frá Evrópu um stöðu kvenna þegar kemur að  fjárfestingum í nýsköpun og margt fleira.

Á viðburðinum átti svo sér stað hreinskilið samtal á milli frumkvöðla og fjárfesta um það sem raunverulega ræður úrslitum. Þrír fjárfestar og þrír frumkvöðlar stigu á svið, fluttu erindi og  höfðu ákveðinni spurningu að svara.

Ásthildur Otharsdóttir, meðeigandi og fjárfestingastjóri hjá Frumtaki, svaraði spurningunni um hvernig hún eða þau í Frumtaki meta teymi – og hvað einkennir þau teymi sem þau telja sterkust. Hún talaði um að samsetning teymis skipti mestu máli en þau funda oft með sínum teymum og þurfa að finna góð tengsl við þau.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop, svaraði spurningunni  hvað reyndist raunverulega lykilatriði í þeirra vaxtar – og fjármögnunarferli. En þær kynntu sér vel hvernig góð fyrirtæki í barnaefnisbransanum byggðust upp eins og t.d. Hello Kitty en sagði að lykilatriðið sé að fá samvinnu við reynslubolta.

Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri AxUM Verðbréfa og Landvætta svaraði spurningunni hvað þyrfti til að hann tæki næstu skef, þ.e. hvað valdi ákvörðunartökunni. En til að hann ákveði að fjárfesta í frumkvöðli þá þarf hann að vera áhugaverður og drífandi. Ef hann nær góðum tengslum við frumkvöðul og hefur trú á teyminu hans þá verður alltaf erfiðara að slíta því samstarfi, þess vegna sé mikilvægt að byggja upp traust og trúverðugleika milli fjárfestis og frumkvöðuls.

Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri og stofnandi GeoSilica. Svaraði spurningunum: Hvað skildir þú ekki um fjárfesta og fjármögnunarferli áður en þú eða þið hófust handa og hefur kyn þitt, uppruni eða menntun verið hindrun eða hjálp í þinni fjármögnunarleit? Fida sagði að þrautsegja, tengslanet og traust sé mikilvægast í að ná fjárfestingu. Það sé bæði hindrun og styrkur að vera af erlendum uppruna. Hún hefur hins vegar sett sér það markmið að skera sig úr frekar en að passa inn í boxið.

Marinella Haraldsdóttir, fjárfestir sem situr í stjórn ýmissa fyrirtækja, sjóða og félaga þar meðtalið IceBAN svaraði spurngunni um hvað frumkvöðlar þurfa að gera til að byggja traust á fyrsta fundi og hvað ber að forðast? Marinella sagði m.a. að það sem skapar traust til frumkvöðla er að þeir þurfa að koma vel undirbúnir og á réttum tíma í kynningar. Kynningin þarf að vera einföld og vel gerð þannig að fjárfestirinn skilji út á hvað hugmyndin/verkefnið gengur.

Ósvaldur Knudsen, framkvæmdastjóri Laki Power, fékk spurninguna hvort það hafi skipt máli að hafa fjölbreytt teymi í vaxtavegferð þeirra og þegar þeir fóru að sækjast eftir fjármögnun - Og hvort það hafi verið þrýstingur frá fjárfestum að vera með blandað teymi. Ósvaldur sagði m.a. að fjölbreytni í teymi skipti máli fyrir fjárfesta en fyrir frumkvöðulinn er það hæfni sem skiptir máli þegar valið er í teymið og hann hefði alltaf valið hæfasta fólkið. Hann hefði þó aðlaga umsóknarferli til að laða að besta fólkið sem myndi endurspegla fjölbreytni í teyminu sem hann sóttist eftir. Laki Power byrjaði sem karlateymi en eru nú búnir að fá tvær konur í teymið sitt.

Frumkvöðlarnir og fjárfestarnir voru svo í panel þar sem þeir fengu hinar ýmsu spurningar frá Eddu Láru sem og spurningar úr sal og skapaðist mjög áhugaverðar umræður.

Virkilega vel heppnaður viðburður og ljóst þykir að svona viðburður trekkir að og þarf að huga að stærra rými næst því einhverjir þurftu frá að hverfa sem vonandi geta verið með okkur næst.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.