13
.
March
2026

Verðlaunahafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2025 heimsóttur 

Á myndinni eru: Erna Björnsdóttir frá Íslandsstofu, Eva Einarsdóttir frá Rannís, Eiríkur Sigurðsson frá Hugverkastofunni, Karl Birgir Björnsson frá Hefring Marine, Hrönn Greipsdóttir frá Nýsköpunarsjóðnum Kríu, Björn Jónsson frá Hefring Marine og Borghildur Erlingsdóttir frá Hugverkastofunni

Fulltrúar þeirra stofnana sem standa að Nýsköpunarþingi og Nýsköpunarverðlaunum Íslands heimsóttu fyrirtækið Hefring Marine í vikunni. Fyrirtækið hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 fyrr í vetur og hefur skapast sú hefð að verðlaunahafar séu heimsóttir í kjölfarið. 

Að verðlaununum og þinginu standa Hugverkastofan, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Íslandsstofa og Rannís, og mættu fulltrúar þeirra til Hefring Marine af þessu tilefni. Karl Birgir Björnsson og Björn Jónsson, tveir af stofnendum félagsins, tóku vel á móti hópnum og sögðu frá rekstri fyrirtækisins, núverandi stöðu þess og framtíðarsýn. 

Heimsóknin var afar ánægjuleg og ljóst að spennandi verður að fylgjast áfram með þróun og vexti félagsins. 

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 2026 

Sem handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands mun Hefring Marine taka þátt fyrir Íslands hönd í Nýsköpunarverðlaunum Norðurlandanna 2026 (Nordic Innovation Award). Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Osló 21. maí næstkomandi en hvert Norðurlandanna tilnefnir eitt nýsköpunarfyrirtæki til verðlaunanna. Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, og mun hún velja eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.