
Í vikunni brugðu Hrönn Greipsdóttir, forstjóri, og Valdimar Halldórsson, fjárfestingarstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, sér í heimsókn til Aurora Abalone (Sæbýli) í Grindavík. Félagið framleiðir sæeyru í húsakynnum sínum í Grindavík og áformar sjálfbæra ræktun á iðnaðarskala fyrir alþjóðamarkað í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.
Nýsköpunarsjóðurinn Kría tengist Aurora Abalone í gegnum mótframlagslán sem veitt voru árið 2020. Starfsemin í Grindavík er metnaðarfull og framtíðaráformin mjög spennandi, þar sem hugvit og séríslenskar náttúrulegar aðstæður nýtast vel til uppbyggingar. Sæeyru eru ein verðmætasta sjávarafurð sem framleidd/alin er og afurðirnar frá Aurora Abalone eru í sérstaklega háum gæðaflokki samanborið við sæeyru sem alin eru annars staðar í heiminum. Núverandi framleiðsla er meðal annars seld inn á fínustu veitingahús í Evrópu.
Framundan er áframhaldandi vinna við fjármögnun vegna fyrirhugaðrar stækkunar framleiðslunnar.
Sigurður Pétursson, stjórnarformaður, og Richard Kristinsson Dulaney, framkvæmdastjóri, Aurora Abolone, tóku á móti Hrönn og Valdimar og fræddu þau um starfsemina. Heimsóknin var vel heppnuð og fróðleg.