11
.
August
2026

Sprotaumhverfið og Evrópa: Tækifæri og áskoranir

Hvaða áhrif gæti aðild Íslands að Evrópusambandinu haft á íslenskt nýsköpunarumhverfi? Hvaða tækifæri gætu skapast fyrir íslensk nýsköpunarfyrirtæki og fjárfesta – og hvaða áskoranir gætu fylgt?

Nýsköpunarsjóðurinn Kría, KLAK – Icelandic Startups, Rannís og Framvís standa að viðburðinum Sprotaumhverfið og Evrópa: Tækifæri og áskoranir sem fram fer í stóra salnum í Grósku mánudaginn 17. ágúst kl. 16:00–18:00.

Markmið viðburðarins er að ræða með yfirveguðum hætti hvaða áhrif möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti haft á íslenskt sprota- og nýsköpunarumhverfi. Meðal þess sem verður til umræðu eru tækifæri tengd fjármögnun og styrkjum, aðgengi íslenskra fyrirtækja að mörkuðum og samstarfi í Evrópu, regluverk og þær áskoranir sem breytingar á umhverfi íslenskra sprota- og nýsköpunarfyrirtækja gætu haft í för með sér.

Til að varpa ljósi á málið frá ólíkum sjónarhornum koma saman sérfræðingar, frumkvöðlar og fjárfestar með fjölbreytta reynslu úr nýsköpunarumhverfinu.

Fram koma:

  • Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu
  • Ágúst Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
  • Hallgrímur Oddsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Evrópustrauma
  • Ásthildur Otharsdóttir, meðeigandi hjá Frumtaki
  • Jökull Sólberg Auðunsson, meðstofnandi TripToJapan.com
  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect
  • Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID

Gestir fá jafnframt tækifæri til að beina spurningum til pallborðsins og taka þannig virkan þátt í umræðunni.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.