1
.
October
2026

Sea Thru valið í TINC viðskiptahraðalinn

Fyrirtækin eru hluti af völdum hópi norrænna sprotafyrirtækja sem taka þátt í haustlotu TINC árið 2026.

Sea Thru hefur verið valið til þátttöku í TINC, alþjóðlegum viðskiptahraðli fyrir norræn tæknifyrirtæki með alþjóðleg vaxtarmarkmið. Sea Thru er eitt þeirra fyrirtækja sem kom inn í Nýsköpunarsjóðinn Kríu í gegnum Frumsjóð 2025 átakið. Unnur Verkbókhald var einnig valið í hraðalinn og eru fyrirtækin hluti af völdum hópi norrænna sprotafyrirtækja sem taka þátt í haustlotu TINC 2026. Teymin tvö  eru landsbyggðarfyrirtæki sem koma í gegnum Drift EA, miðstöð nýsköpunar á Akureyri, sem styður við frumkvöðlafyrirtæki með fjárfestingu og veitirmarkvissan stuðning við vöxt og þróun þeirra. Nýsköpunarsjóðurinn Kría er bakhjarl Drift EA og styður við uppbyggingu og eflingu nýsköpunar ál andsbyggðinni.

Sex vikna alþjóðlegur viðskiptahraðall

TINC er sex vikna viðskiptahraðall sem styður fyrirtæki við að staðfesta vörumarkaðssamræmi, þróa viðskiptamódel og undirbúa alþjóðlegan vöxt. Þátttakendur vinna með reyndum frumkvöðlum, sérfræðingum og fjárfestum auk þess að byggja upp tengsl við mögulega viðskiptavini og samstarfsaðila. Dagskráin hófst með sameiginlegum vinnudögum í Osló í september og heldur áfram með fjarfundum og handleiðslu í október. Hraðlinum lýkur með viðamikilli dagskrá í Kísildalnum í Bandaríkjunum í nóvember. Þar fá þátttakendur tækifæri til að kynnast einu öflugasta nýsköpunarumhverfi heims, hitta sérfræðinga og fjárfesta og vinna markvisst að inngöngu á alþjóðlega markaði.

Rekjanleiki sjávarafurða

Sea Thru þróar sérhæfða gagnainnviði fyrir rekjanleika sjávarafurða. Lausnin tengir saman gögn úr ólíkum kerfum og umbreytir þeim í skýra og samfellda rekjanleikasögu, frá uppruna til smásölu. Með lausninni er hægt að draga úr handvirkri gagnasöfnun, einfalda skýrslugjöf og styðja fyrirtæki við að uppfylla auknar kröfur viðskiptavina, eftirlitsaðila og vottunarstofa.

KLAK – Icelandic Startups samstarfsaðili TINC

KLAK – Icelandic Startups er samstarfsaðili TINC á Íslandi og tengir íslensk nýsköpunarfyrirtæki við hraðalinn og alþjóðlegt tengslanet hans. TINC var þróaður af Innovation Norway og er rekinn í samstarfi við Vinnova, Business Finland og KLAK – Icelandic Startups. Alls hafa 29 TINC-hraðlar verið haldnir og 278 norræn tæknifyrirtæki tekið þátt þar á meðal nokkur félög í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.