
Pikkoló hefur hlotið markaðs- og kynningarstyrk frá Hönnunarsjóði Íslands fyrir 1,5 milljónir króna. Hönnunarsjóður veitir árlega styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja og í ár varð Pikkoló eitt af þeim fyrirtækjum sem hlaut markaðs- og kynningarstyrk. Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum. Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.
Pikkaló er eitt þeirra ellefu félaga sem Nýsköpunarsjóðurinn Kría valdi til þátttöku í fjárfestingaátaki sínu árið 2025, Frumsjóður 2025. Pikkoló var stofnað árið 2021 og vnnur að þróun á sjálfbæru dreifikerfi sem tengir matvöruverslanir á netinu við kældar afhendingastöðvar sem eru í nærumhverfi fólks. Meginmarkmið Pikkoló er að allir geti nálgast fjölbreyttar og ferskar matvörur í nærumhverfi sínu með einföldum, ódýrum og umhverfisvænum hætti.
Við óskum Pikkoló innilega til hamingju með styrkinn.