
Ný íslensk teiknimynd frá Tulipop var frumsýnd í Sambíóunum um helgina. Pési prakkari er nýtt hrekkjavökuævintýri úr töfraheimi Tulipop, ætlað yngstu kynslóðinni. Tulipop var stofnað árið 2010 og kom inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2022.
Umfjöllun um Tulipop og Pésa prakkara og viðtal við Helgu Árnadóttur, meðstofnanda og framkvæmdastjóra Tulipop, birtist í Morgunblaðinu um helgina í tilefni frumsýningarinnar. Þar kemur m.a. fram að um hundrað manns komu að gerð myndarinnar en vinnan við hana tók rúmt ár. Daði Freyr samdi meðal annars tvö frumsamin lög fyrir myndina. Helga lýsir myndinni sem leyndardómsfullu haustævintýri og hlýrri og skemmtilegri sögu með jákvæðum boðskap. Myndin gerist að hausti á Tulipop-eyjunni þar sem vinirnir undirbúa hrekkjavökuna. Þegar grasker fara skyndilega að hverfa hefst leitin að hinum dularfulla Pésa prakkara. Um er að ræða hálftíma langa teiknimynd sem er sérstaklega hugsuð fyrir börn á aldrinum þriggja til sex ára.
Pési prakkari er önnur af þremur teiknimyndum Tulipop. Fyrsta myndin, Vetrarsaga, var sýnd fyrir jólin í fyrra og þriðja myndin, sem verður tröllasaga, er nú þegar í vinnslu og er væntanleg á næsta ári.
Tulipop hefur jafnframt náð góðum árangri utan Íslands. Teiknimyndaþáttaröðin Ævintýri Tulipop er komin í sýningar í yfir 20 löndum, hjá meira en 30 sjónvarpsstöðvum og streymisveitum og hefur verið talsett á um 12 tungumál. YouTube-rás Tulipop hefur náð yfir 60 milljónum áhorfa og nýlega var gerður samningur um útgáfu 15 Tulipop-barnabóka á Ítalíu
Pési prakkari var unnin í samstarfi við ríkissjónvarpsstöðvar Norðurlandanna og fer í dreifingu þar á næsta ári, en stefnt er að því að myndin fari í kjölfarið í dreifingu víðar um heim.
„Markmiðið er auðvitað að sigra heiminn, og við erum sífellt að komast nær því markmiði, eitt skref í einu,“ segir Helga í samtali við Morgunblaðið.
Hér má lesa umfjöllunina í heild sinni.