
Íslensk sprotafyrirtæki geta nú sótt um þátttöku í TINC (e. Tech Incubator), alþjóðlegan hraðal fyrir norræn tæknifyrirtæki sem fer fram í samstarfi Innovation Norway og Nordic Innovation House.
Umsóknarfrestur fyrir haustönn 2026 er 5. ágúst.
TINC er sex vikna hraðall sem sameinar meðal annars vinnustofur, einstaklingsmiðaða ráðgjöf, pitch-þjálfun og tengslamyndun. TINC hraðallinn veitir sprotafyrirtækjum gríðarlegt tækifæri á að vaxa og dafna erlendis. Fókus er á að hjálpa sprotum að staðfesta vöru sína eða markað, þróa viðskiptamódelið enn frekar og finna möguleika á alþjóðlegum markaði. Hraðallinn er fyrir norræn tæknifyrirtæki sem hyggja á alþjóðlegan vöxt. Leidd eru saman efnileg norræn sprotafyrirtæki og ýmsir leiðbeinendur frá Silicon Valley þ.m.t. sérfræðingar í áhættufjárfestingum og markaðs- og sölumálum. Hér má lesa nánar um TINC.
TINC hraðallinn hefur verið haldinn síðan árið 2012 og hafa fjölmörg íslensk nýsköpunarfyrirtæki tekið þátt í honum. Þar á meðal tvo fyrirtæki úr eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu Humble og HorseDay.
Fyrirtæki sem hafa lokið hraðlinum hafa lýst honum sem einstöku tækifæri til að þróa fyrirtæki sín, styrkja framtíðarsýn og öðlast dýrmæt tengsl við alþjóðlegt nýsköpunarumhverfi.
Arnar Geir Arnarson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Humble:
„TINC hraðallinn var vægast sagt frábær upplifun fyrir stofnenda teymið hjá okkur! TINC gerði okkur kleift að bera okkur saman við erlend nýsköpunarfyrirtæki og fá smjörþefinn af Kísildals startup menningunni (sem er náttúrulega draumur allra frumkvöðla). Mentorarnir eru frábærir og hjálpuðu okkur þvílíkt við að skerpa á skilaboðum, stefnu og pitchi. Við mælum eindregið með TINC!“
Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda HorseDay:
„Þátttaka í TINC var ómetanleg reynsla fyrir okkur hjá HorseDay. Við fengum að vinna með framúrskarandi mentorum, byggja upp sterkt alþjóðlegt tengslanet og öðlast dýrmæta innsýn í hvernig byggja má alþjóðlegt sprotafyrirtæki. Við kynntumst hugsunarhætti Silicon Valley og fengum að upplifa af eigin raun hvernig sprotar eru byggðir upp í þessu einstaka umhverfi. Sú reynsla víkkaði sjóndeildarhring okkar og opnaði tengingar sem hafa þegar reynst okkur afar verðmætar.“
Haustönn TINC hefst með opnunarfundi í Osló dagana 22.–23. september. Að því loknu tekur við fjögurra vikna netnámskeið áður en þátttakendur halda til Silicon Valley í nóvember þar sem þeir fá aðgang að leiðandi sérfræðingum, fjárfestum og frumkvöðlum. Þátttökugjald er $17.500 per teymi en menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið niðurgreiðir þátttökugjaldið um 750.000 krónur per teymi.
Minnum á að umsóknarfrestur er til 5. ágúst.