5
.
March
2026

Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók þátt í Norðanstormi

Ráðstefnan Norðanstormur fór fram í Hof á Akureyri þann 26. febrúar. Norðanstormur er vettvangur þar sem hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast.

Á ráðstefnunni veittu fjárfestar innsýn í helstu fjármögnunarleiðir sem standa frumkvöðlum til boða og þau sjónarmið sem liggja að baki ákvörðunartöku um fjárfestingar. Frumkvöðlar á Norðurlandi stigu jafnframt á svið og sögðu frá eigin fjármögnunarvegferð, þeim tækifærum sem hafa skapast og þeim áskorunum sem þau hafa tekist á við á vaxtarferli fyrirtækja sinna.

Meðal fyrirlesara var Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu. Hún flutti erindi um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja og hlutverk sjóðsins sem opinbers fjárfestingasjóðs í uppbyggingu öflugs nýsköpunarumhverfis. Í erindi sínu fjallaði hún um íslenska fjármögnunarumhverfið, aðgengi frumkvöðla að fjármagni og mikilvægi þess að efla fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja enn frekar til að styrkja vöxt, velsæld og samkeppnishæfni Íslands.

Á dagskránni voru jafnframt líflegar pallborðsumræður þar sem fjárfestar og frumkvöðlar deildu reynslu sinni og veittu hagnýt ráð og innsýn í þá þætti sem skipta sköpum við fjármögnun og uppbyggingu fyrirtækja.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.