7
.
July
2026

Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók þátt í fundi EVFIN í Osló

Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu, tók nýverið þátt í fundi European Venture Fund Investors Network (EVFIN) sem haldinn var í Osló í Noregi.

EVFIN er samstarfsvettvangur evrópskra opinberra fjárfesta sem stofnaður var árið 2011 með það að markmiði að efla samvinnu, miðla góðum starfsvenjum og stuðla að öflugra og sjálfbærara vistkerfi fyrir fjármagn í Evrópu. Nýsköpunarsjóðurinn Kría er einn af aðildarsjóðum samtakanna ásamt sambærilegum ríkisreknum fjárfestingarsjóðum á Norðurlöndunum og víðs vegar um Evrópu.

Til fundarins mættu um 50 manns frá 25 fjárfestingasjóðum. Á fundinum var meðal annars fjallað um nýjustu þróun í stefnumótun og regluverki Evrópusambandsins sem snýr að áhættufjármögnun, hvernig aðildarsjóðir nýta evrópska fjármögnunarmöguleika til fjárfestinga í vísisjóðum, leiðir til að virkja fagfjárfesta til þátttöku í sjóðafjárfestingum og reynslu Norðmanna af opinberu og einkareknu samstarfi við fjármögnun.

Þátttaka í EVFIN veitir Nýsköpunarsjóðnum Kríu mikilvægan vettvang til að fylgjast með þróun á evrópskum fjármagnsmarkaði, læra af reynslu sambærilegra sjóða og miðla eigin þekkingu. Samstarfið eflir tengsl við aðra ríkisrekna fjárfestingarsjóði í Evrópu sem nýtist við áframhaldandi uppbyggingu íslensks nýsköpunarumhverfis.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.