20
.
October
2026

Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfestir í tæknifyrirtækinu PROCEON

Ólafur Baldursson, yfirmaður vélahönnunar, Ragnar Guðmundsson, meðstofnandi og sölustjóri, Trausti Árnason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri, Elías Jónsson, meðstofnandi og tæknistjóri, og Böðvar Már Styrmisson, vinnsluhönnuður.

Íslenska tæknifyrirtækið PROCEON hefur lokið 60 milljóna króna fjármögnunarlotu þar sem Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfestir fyrir 30 milljónir króna og einkafjárfestar ásamt stofnendum leggja til jafnhátt mótframlag. Fjármögnunin mun styðja við áframhaldandi þróun á gervigreindardrifnum lausnum sem ætlað er að auka sjálfvirkni, nýtingu og verðmætasköpun í sjávarútvegi og matvælaiðnaði.

PROCEON var stofnað í október 2025 af Trausta Árnasyni, Elíasi Jónssyni og Ragnari Guðmundssyni með það markmið að hjálpa fyrirtækjum í sjávarútvegi, laxeldi og matvælaframleiðslu að auka verðmætasköpun, nýtingu hráefnis og rekstrarskilvirkni með gervigreindardrifnum lausnum. Stofnendur félagsins búa samanlagt yfir áratuga reynslu af þróun og innleiðingu hátæknilausna fyrir matvælaiðnað.

Lausnir PROCEON eru hannaðar til að vinna með þeim búnaði og kerfum sem þegar eru í notkun, óháð framleiðanda, og gera fyrirtækjum kleift að nýta gögn og sjálfvirkni til að bæta ákvarðanatöku, afköst og sjálfbærni. PROCEON hefur þegar stigið sín fyrstu skref á alþjóðlegum markaði. Fyrr á árinu gerði félagið samning við leiðandi breskt uppsjávarfélag um heildarlausn fyrir hrognavinnslu. Fyrsti áfangi verkefnisins var afhentur í lok júlí, fyrir síldarhrognavertíð, og skilaði aukinni verðmætasköpun.

Sjálfvirknivæðir eitt mannaflsfrekasta skrefið í fiskvinnslu

Fjármagnið verður nýtt til að ljúka þróun og fyrstu innleiðingum PROJET sem er gervigreindardrifin vatnsskurðarlausn fyrir lax og hvítfisk sem sameinar myndgreiningu, gervigreind og nákvæma skurðtækni til að sjálfvirknivæða mat og snyrtingu hvers flaks í rauntíma.

Í dag er snyrting að stórum hluta handvirkt ferli þar sem hvert flak þarf að fara fyrir augu starfsmanns sem metur hvað þurfi að skera frá og framkvæmir skurðinn. PROJET sjálfvirknivæðir þetta ferli með því að greina hvert flak með myndgreiningu og aðlaga skurðinn að raunverulegum eiginleikum og gæðum þess. Markmiðið er að fækka handtökum í þessu ferli, taka út huglægt mat, tryggja samræmd gæði og hámarksnýtingu með því að fjarlægja nákvæmlega það sem þarf til að uppfylla gæðakröfur, en varðveita um leið sem mest af verðmætri afurð.

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu:

„Styrkur teymis er einn mikilvægasti þátturinn sem horft er til þegar fjárfest er í nýsköpunarfyrirtækjum.  Proceon teymið býr yfir eftirtektarverðu hugviti, reynslu, krafti og stóru tengslaneti.  Til marks um það þá hefur félagið þegar afhent sitt fyrsta verkefni til erlends viðskiptavinar og fengið einkafjárfesta með sér á þessu stigi. Það er sjóðnum einnig  mikilvægt að styðja við nýsköpun í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og við hlökkum til að fylgja félaginu eftir í þessari spennandi vegferð.“

Trausti Árnason, framkvæmdastjóri PROCEON:

„Við erum afar ánægðir með að fá Kríu og aðra fjárfesta í hópinn og stuðningur þeirra skiptir okkur mjög miklu máli á þessum tímapunkti. Þegar við stofnendur vorum á tímamótum sl. haust sáum við fjölmörg tækifæri á markaðnum og ákváðum að taka slaginn og stofnuðum félagið. Kría hefur verið okkur mikil hvatning og stuðningur í þessu ferli. Undanfarið höfum við átt í nánu samtali við fyrirtæki í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu um þær áskoranir sem greinin stendur frammi fyrir, bæði hér heima og erlendis. Úr því samtali hafa sprottið fjölmargar hugmyndir að lausnum sem taka á raunverulegum og óleystum vandamálum í greininni, og ein þeirra hlaut styrk frá Rannís fyrr á árinu. Á vormánuðum tók hugmyndin að PROJET á sig skýra mynd, og í dag er frumgerð lausnarinnar í smíðum eftir vel heppnað hönnunarferli. Viðbrögð markaðarins hafa verið mjög jákvæð og við teljum að PROJET hafi burði til að umbreyta ákveðnum vinnsluskrefum.“

‍

Um PROCEON

PROCEON ehf. er íslenskt tæknifyrirtæki, stofnað árið 2025, sem þróar gervigreindarlausnir fyrir sjávarútveg, laxeldi og matvælaframleiðslu. Í þessum greinum tapast dagleg verðmæti í handvirkum ferlum, huglægu mati og gögnum sem ekki eru nýtt til ákvarðana. Lausnir PROCEON bæta nýtingu, gæði og skilvirkni í framleiðslu með ólíkum hætti: PROJET, gervigreindarstýrð vatnsskurðarlausn fyrir sjálfvirka gæðasnyrtingu, VISQA, sjálfvirkt gæðamat með myndgreiningu, og PREDIXA, greiningar- og gervigreindarlíkan sem nýtir rauntímagögn um búnað, framleiðslu og hráefnisnýtingu til að greina frávik snemma og styðja gagnadrifna ákvarðanatöku.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.