2
.
October
2026

Mikilvægt að grípa inn í áður en álag verður að fjarveru

Umfjöllun um Köru Connect, eitt af félögunum í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, birtist þann 1. október í Morgunblaðinu. Í umfjöllun Morgunblaðsins er rætt við Erik Christianson Chaillot, mannauðsstjóra KPMG á Íslandi, um reynslu fyrirtækisins af velferðartorgi Köru Connect. KPMG innleiddi lausnina árið 2023 með það að markmiði að gera starfsfólki kleift að leita sér stuðnings fyrr og með fyrirbyggjandi hætti, áður en álag eða önnur vandamál verða umfangsmeiri.  

Að sögn Eriks hefur notkun þjónustunnar aukist jafnt og þétt og ánægja starfsfólks verið mikil. Hann segir mikilvægustu breytinguna þó vera að það sé orðið eðlilegra að ræða andlega heilsu á vinnustaðnum og leita sér stuðnings. Þjónustan sé nú orðin mikilvægur hluti af vinnustaðamenningu KPMG.    

Traust og trúnaður eru jafnframt lykilatriði í lausninni. Starfsfólk getur leitað sér aðstoðar án þess að stjórnendur eða mannauðsteymi viti hver bókar tíma eða hvers vegna, auk þess sem lögð er áhersla á persónuvernd og örugga meðferð upplýsinga.    

Erik bendir á að vinnustaðir bíði oft of lengi með að grípa inn í og að forvarnir þurfi að vera hluti af daglegu starfsumhverfi en ekki aðeins viðbragð þegar veikindafjarvera er þegar hafin.    

„Ávinningurinn með Köru felst ekki síst í skýrum skilaboðum um að vinnustaðurinn taki vellíðan alvarlega,“ segir Erik og hvetur vinnustaði til að skoða hvernig hægt sé að laga þjónustuna að þörfum starfsfólks.  

Umfjöllunina í heild sinni má lesa í Mannauðsblaði Morgunblaðsins frá 1. október 2026.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.