20
.
July
2026

Michael og Kristín í stjórn Sweeply

Sweeply, sem er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, hefur skipað Michael Levie og Kristínu Þorsteinsdóttur í stjórn félagsins. Með ráðningunum styrkir félagið enn frekar stefnumótandi uppbyggingu sína og alþjóðlega sókn á markaði fyrir rekstrarlausnir í hótel- og ferðaþjónustu.

Michael Levie er einn þekktasti frumkvöðull og áhrifavaldur alþjóðlegs hótelrekstrar síðustu áratuga. Hann er einn af stofnendum citizenM Hotels, sem hefur verið talið eitt áhrifamesta og mest umbreytandi vörumerki nútímahótelrekstrar. Levie hefur í gegnum feril sinn gegnt lykilstjórnunarstöðum hjá Sonesta International, NH Hoteles og SynXis og er víða þekktur fyrir framlag sitt til nýsköpunar, stafrænnar umbreytingar og þróunar rekstrarlíkana í hótelgeiranum.

Kristín Þorsteinsdóttir leiðir þróunarmál fyrir Frakkland, Tyrkland, Georgíu og CIS-svæðið hjá IHG Hotels & Resorts. Hún hefur víðtæka reynslu úr hótela-, ferða- og fasteignageiranum og hefur sérhæft sig í þróun, eignasafnsstýringu og stefnumótandi samstarfi. Kristín hefur leitt flókin viðskipti og verðmætar samningaviðræður ásamt því að byggja upp samstarf sem skilar framúrskarandi árangri í alþjóðlegum rekstri.

„Það er mikill styrkur fyrir Sweeply að fá Michael og Kristínu til liðs við stjórn félagsins. Þekking þeirra, reynsla og tengslanet munu styðja sterkt við áframhaldandi vöxt Sweeply á alþjóðamarkaði,“ segir Þórhildur Edda Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Sweeply.

Sweeply þróar hugbúnað sem einfaldar daglegan rekstur hótela og gististaða með því að sameina þrif, viðhald og gestaþjónustu í einu stafrænu kerfi þar sem verkefni, yfirsýn og samhæfing teyma fara fram í rauntíma.

Lausnir Sweeply eru nú notaðar af um 300 hótelum og gististöðum í 26 löndum, allt frá sjálfstætt reknum hótelum til alþjóðlegra hótelkeðja og rekstraraðila með fjölbreytt eignasöfn.

Sweeply var stofnað árið 2019 og kom inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2020.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.