12
.
March
2026

Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Við vekjum athygli á að opið er fyrir umsóknir í Lóu nýsköpunarstyrki út 30. mars 2026. Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins og ætlaðir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi. Hlutverk styrkjana er að auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum.

Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.

Vakin er athygli á að styrkirnir eru einnig fyrir verkefni sem styðja við uppbyggingu á vistkerfi fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna. Slík verkefni munu þó ekki nema meira en helmingi þeirra verkefna sem hljóta úthlutun.

Allar nánari upplýsingar má finna hér.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.