24
.
February
2026

KLAK á lista Financial Times yfir ­stuðningsaðila nýsköpunar

KLAK – Icelandic Startups er ein af 180 miðstöðvum í Evrópu sem kemst inn á lista Financial Times, Sifted og Statisa um fremstu stuðningsaðila nýsköpunar. Þetta er annað árið í röð sem KLAK er valið á listann yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu, Europe’s Leading Start-up Hubs, og klifrar upp um þrettán sæti milli ára.

Á hverju ári framkvæmir Financial Times, í samstarfi við Statista, greiningu á þúsundum nýsköpunarmiðstöðva í Evrópu en aðeins 180 miðstöðvar hljóta sæti á listanum.

„Það er gríðarlegur heiður að vera aftur á þessum lista og sérstaklega að hækka um þrettán sæti á milli ára á sama tíma og samkeppnin eykst. Þetta er skýr staðfesting á gæðum þeirrar þjónustu sem KLAK veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi, og sýnir jafnframt að íslenskt nýsköpunarumhverfi stenst samanburð við það sem best gerist erlendis,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups.

Við val á Europe’s Leading Start-up Hubs er meðal annars horft til umsagna fyrrverandi þátttakenda í viðskiptahröðlum, mats sérfræðinga á borð við fjárfesta, frumkvöðla og fræðimanna, ásamt árangri efnilegustu sprotafyrirtækjanna sem hafa farið í gegnum viðkomandi miðstöð.

„Að fá viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðilum og Financial Times, Sifted og Statista styrkir okkur í þeirri trú að sú leið sem við höfum valið - þar sem samvinna, handleiðsla og aðgengi að sérfræðiþekkingu eru í lykilhlutverki - skili raunverulegum áhrifum.“

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.