
Sprotafyrirtækið Keeps hefur lokið 50 milljóna króna fjármögnunarlotu. Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps, segir að þetta hafi verið sannkölluð „kvennafjármögnun“ en nýir fjárfestar séu flestir konur.
Meðal þátttakenda í fjármögnunarlotunni voru Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi Sensa, Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður hjá Högum og Nova, og Rannveig Grétarsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Eldingar. Auk þess tóku Guðlaug Erla Jóhannsdóttir, Anna Björk Bjarnadóttir og Selma Árnadóttir þátt.
Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfesti einnig í sprotafyrirtækinu í formi mótframlags. Keeps var stofnað árið 2023 og kom sjóðurinn fyrst að félaginu sama ár í gegnum fjárfestingaátakið Frumsjóður 2023.
„Markmiðið með fjármögnuninni er að stuðla að áframhaldandi sölu og þróun ásamt því að byrja að þróa afþreyingarhlutann í kerfinu sem margir bíða eftir,“ segir Guðrún Hildur.
Hún bætir við að fyrirtækið sé nú að þróa nýtt samfélagsmiðlatól sem muni m.a. nýtast veitingastöðum og ferðaskrifstofum.
Við óskum Guðrúnu og samstarfsfólki hennar í Keeps til hamingju með fjármögnunina.