
Nýsköpunarfyrirtækið Keeps er nú formlega orðið hluti af eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu sem hefur fjárfest í félaginu auk þess að skuldbreyta láni. Fyrsta aðkoma NSK var einmitt í gegnum Frumsjóðs átakið árið 2023 þegar fjárfest var í 9 félögum með umbreytanlegum lánum. Keeps þróar hugbúnaðarlausn sem gerir ferðaþjónustuaðilum kleift að halda utan um allar myndir og texta á einum stað og deila því þaðan á helstu sölusíður.
Keeps var stofnað árið 2023 af Guðrúnu Hildi Ragnarsdóttur og Nínu Louise Auðardóttur. Lausnir félagsins snúa að einföldun ferla í utanumhaldi á efni og deilingu efnis fyrir markaðssetningu. Í dag eru ferðaþjónustuaðilar að uppfæra myndir og upplýsingar handvirkt á hverri sölusíðu, eins og Expedia, booking.com og Tripadvisor sem er mjög tímafrekt og veldur því að markaðssetningu eru ekki sinnt og hefur áhrif á sölu og sýnileika. Með Keeps verða þessir ferlar sjálfvirkir sem eru í senn tímasparandi og söluaukandi og ýta undir sjálfbærni. Keeps vinnur nú hörðum höndum að því að bæta við eiginleikum við kerfið og innan skamms geta notendur tímasett myndir í birtingu þess að t.d. norðurljósamyndir birtist á því sölutímabili og detta svo úr sýningu fyrir sumarið. Ásamt því verður fljótlega hægt að sjá hvar misræmi er á upplýsingum og myndum á milli sölusíða.
Við bjóðum Keeps hjartanlega velkomið í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu