Fyrirtækið Humble hlaut í dag, 28. apríl, Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári.
Í úrskurði dómnefndar segir að Humble hafi með eftirtektarverðum hætti dregið úr matarsóun á Íslandi. Frá upphafi hafi fyrirtækið haft það að leiðarljósi að minnka sóun og nýta betur þau verðmæti sem annars færu til spillis.
Haft er eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að mikil gróska sé í umhverfismálum í samfélaginu. Nýsköpun, framsýni og metnaður sjáist vel í þeim fjölda tilnefninga sem bárust, þar sem bæði einstaklingar og fyrirtæki taki þátt í að stuðla að sjálfbærari framtíð. Áhersla á sjálfbærni skili sér bæði fyrir umhverfið og í tengslum fyrirtækja við viðskiptavini sína en auk Humble fékk Krónan líka Kuðunginn í flokki stærri fyrirtækja.
Humble hlaut Kuðunginn í flokki smærri fyrirtækja og öðlast jafnframt rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni.
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Humble kemur fram að fyrirtækið hafi vaxið tífalt á liðnu ári og þannig bjargað umtalsverðum verðmætum frá því að enda sem úrgangur, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á umhverfið.
Árið 2025 kom Humble í veg fyrir að 31 tonni af matvælum yrði hent og þar með losun sem nemur um 100 tonnum af CO2.
Í dómnefnd sátu Benedikt Traustason formaður, Reynir Smári Atlason fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins, Auður Alfa Ólafsdóttir fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Bára Hulda Beck fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfisverndar.
Við óskum Humble innilega til hamingju en Humble hefur verið i eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu síðan árið 2023 en Humble kom fyrst í safn sjóðsins í gegnum átakið Frumsjóður 2023.