15
.
October
2026

Heimsóknir frá Grænlandi, Noregi og Finnlandi

Starfsfólk Nýsköpunarsjóðsins Kríu (NSK) átti ánægjulega fundi á dögunum með fulltrúum frá tveimur fjárfestingarsjóðum frá Grænlandi og Finnlandi. Auk þess kom starfsfólk í heimsókn frá Nordic Innovation sem er norræn stuðningsstofnun við nýsköpun. Þessir aðilar voru á Íslandi í tengslum við Arctic Circle ráðstefnuna sem haldin var í Reykjavík.

Frá Grænlandi komu Peter Christiansen forstjóri og Marte Lona sérfræðingur sem starfa hjá Nalik Ventures frá Grænlandi. Nalik er sjóður sem fjárfestir og lánar í ýmis verkefni á Grænlandi, þar með talið í nýsköpun. Nalik sjóðurinn hefur það að markmiði að stuðla að vexti og atvinnuuppbyggingu á Grænlandi og var stofnaður árið 2022 við sameiningu Greenland Holding, Greenland Venture og Innovation Greenland. Á fundinum með Nalik voru rædd ýmis mál sem tengjast starfsemi Nalik og NSK. Sérstaklega var rætt um nýsköpun og tækifæri og áskoranir á því sviði í löndunum tveimur.

Frá Finnlandi komu Þórhallur Þorsteinsson og Joakim Holmström sem báðir starfa hjá Nefco fjárfestingarbanka í Finnlandi. Nefco er norrænn banki sem leggur áherslu á að lána í umhverfisvæn verkefni á Norðurlöndunum. Nefco bankinn var stofnaður árið 1990 og er í opinberri eigu ríkissjóðs Norðurlandanna og með höfuðstöðvar í Helsinki. Nefco hefur lánað í nokkur verkefni á Íslandi og meðal annars til félaga í eignasafni NSK.

Loks komu í heimsókm þau Emil Gejrot og Ösp Egilsdóttir ráðgjafar frá Nordic Innovation. Þau kynntu Nordic Innovation og hvaða verkefni sú stofnun leggur áherslu á og starfsfólk NSK útskýrði hlutverk sjóðsins á Íslandi og hvernig nýsköpunarumhverfið hefur þróast. Nordic Innovation er með höfuðstöðvar í Osló og er rekin af Norrænu ráðherranefndinni. Stofnunin styrkir verkefni sem styðja við sjálfbærni og umhverfismál. Áherslumálin eru mismunandi eftir árum og hefur stofnunin styrkt ýmis verkefni á Íslandi og einnig á hinum Norðurlöndunum.

Við þökkum þeim öllum fyrir ánægjulegar heimsóknir.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.