18
.
September
2026

Fulltrúar Nýsköpunarsjóðsins Kríu á TechBBQ

Jón Ingi Benediktsson, frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Edda Lára Lúðvígsdóttir, Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku og Hrönn Greipsdóttir

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, og Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga, tóku nýverið þátt í TechBBQ, einni stærstu nýsköpunar- og fjárfestahátíð Norðurlanda, í Kaupmannahöfn.

Á fjárfestadegi hátíðarinnar tók Hrönn þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Building Europe’s Next Champions, þar sem rætt var um hvernig skapa megi hagstætt umhverfi fyrir næstu leiðandi nýsköpunarfyrirtæki í Evrópu og laða að fjármagn frá stofnanafjárfestum. Pallborðinu stýrði Daragh Brown, svæðisstjóri hjá Evrópska fjárfestingarsjóðnum (EIF), en auk Hrannar tóku Merete Clausen, aðstoðarforstjóri Evrópska fjárfestingarsjóðsins (EIF), og Peder Lundquist, forstjóri EIFO, þátt.

Á hátíðinni efldu Hrönn og Edda Lára tengsl við ríkisreknu fjárfestingasjóðina á Norðurlöndunum, hittu fulltrúa vísisjóða og áttu samtöl við fjárfesta og aðra lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu. Þær sóttu einnig móttökur í sendiráði Íslands og sendiráði Svíþjóðar í Kaupmannahöfn og lögðu áherslu á að koma íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum og tækifærum þeirra á framfæri.

„TechBBQ var frábært tækifæri til að styrkja tengslanet Nýsköpunarsjóðsins Kríu, læra af öðrum og deila reynslu okkar og eiga uppbyggileg samtöl við fjárfesta og samstarfsaðila. Slík tengsl eru mikilvæg til að styðja við íslenskt nýsköpunarumhverfi og skapa fyrirtækjum hér á landi fleiri tækifæri til vaxtar“ segir Hrönn.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.