
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, og Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga, tóku nýverið þátt í TechBBQ, einni stærstu nýsköpunar- og fjárfestahátíð Norðurlanda, í Kaupmannahöfn.
Á fjárfestadegi hátíðarinnar tók Hrönn þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Building Europe’s Next Champions, þar sem rætt var um hvernig skapa megi hagstætt umhverfi fyrir næstu leiðandi nýsköpunarfyrirtæki í Evrópu og laða að fjármagn frá stofnanafjárfestum. Pallborðinu stýrði Daragh Brown, svæðisstjóri hjá Evrópska fjárfestingarsjóðnum (EIF), en auk Hrannar tóku Merete Clausen, aðstoðarforstjóri Evrópska fjárfestingarsjóðsins (EIF), og Peder Lundquist, forstjóri EIFO, þátt.
Á hátíðinni efldu Hrönn og Edda Lára tengsl við ríkisreknu fjárfestingasjóðina á Norðurlöndunum, hittu fulltrúa vísisjóða og áttu samtöl við fjárfesta og aðra lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu. Þær sóttu einnig móttökur í sendiráði Íslands og sendiráði Svíþjóðar í Kaupmannahöfn og lögðu áherslu á að koma íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum og tækifærum þeirra á framfæri.
„TechBBQ var frábært tækifæri til að styrkja tengslanet Nýsköpunarsjóðsins Kríu, læra af öðrum og deila reynslu okkar og eiga uppbyggileg samtöl við fjárfesta og samstarfsaðila. Slík tengsl eru mikilvæg til að styðja við íslenskt nýsköpunarumhverfi og skapa fyrirtækjum hér á landi fleiri tækifæri til vaxtar“ segir Hrönn.