
Arion banki býður til fræðsluviðburðar um fjármögnun og vöxt nýsköpunarfyrirtækja fimmtudaginn 3. september kl. 17:00 í Borgartúni 19.
Viðburðurinn ber yfirskriftina Allt fyrir fjármálastjórann – leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki og er ætlaður stofnendum, fjármálastjórum og öðrum sem koma að rekstri sprotafyrirtækja og fyrirtækja í örum vexti. Jafnframt eru allir áhugasamir um framtíð nýsköpunar á Íslandi hvattir til að mæta og taka þátt í fræðslu og umræðum.
Að þessu sinni verður sjónum beint að þeim fjármögnunarleiðum sem standa nýsköpunarfyrirtækjum til boða og hvernig bankar geta stutt við vöxt þeirra.
Jarþrúður Ásmundardóttir mun fjalla um EIF-fjármögnun, sjóðstreymislán og hvernig metin er lánshæfni sprotafyrirtækja. Einnig verða kynntar lausnir Arion banka sem ætlað er að einfalda störf fjármálastjóra og styðja fyrirtæki í daglegum rekstri.
Auk fræðslunnar verður boðið upp á áhugavert spjall við reynslumikið fólk úr íslenska sprotaumhverfinu sem mun deila reynslu sinni af rekstri, fjármögnun, sigrum og þeim áskorunum sem fylgja því að byggja upp fyrirtæki.
Viðmælendur
Að lokinni formlegri dagskrá verða sérfræðingar fyrirtækjasviðs Arion banka á staðnum og gefst gestum kostur á persónulegu spjalli og ráðgjöf.
Húsið opnar kl. 16:30 og boðið verður upp á léttar veitingar og drykki áður en dagskráin hefst kl. 17:00.
Skráning á viðburðinn fer fram hér