8
.
July
2026

Florealis styrkir reksturinn og undirbýr frekari vöxt

Florealis, sem er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, náði sterkum rekstrarárangri á árinu 2025. Samhliða rúmlega 10% tekjuvexti tókst félaginu að hagræða verulega í rekstri, greiða niður skuldir og snúa rekstrartapi fyrra árs í hagnað.

Tekjur félagsins jukust um 10% og námu 448 milljónum króna. Rekstrargjöld lækkuðu um 10%, launakostnaður um 16% og EBITDA jókst um 67% og nam 33 milljónum króna. Jafnframt voru skuldir lækkaðar um 35 milljónir króna og afkoma félagsins varð jákvæð.

Á árinu náði Florealis mikilvægum áföngum í vöruþróun og uppbyggingu starfseminnar. Tvær nýjar vörur komu á markað og fjórar eru nú í virkri þróun. Vöruúrval félagsins var aukið í verslunum og framleiðsluöryggi styrkt með uppsetningu á framleiðsluaðstöðu fyrir hvannarlaufaþykkni í Stykkishólmi.

Á næstu misserum hyggst Florealis byggja áfram á þessum árangri með áframhaldandi vexti á íslenskum markaði, öflugri vöruþróun og markvissri sókn inn á Evrópumarkað.

Florealis var stofnað árið 2013 og kom fyrst inn í eignasafn sjóðsins árið 2018. Framkvæmdastjóri Florealis er Þórey Haraldsdóttir.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.