30
.
September
2026

Fjölmennt á Hönnunarþingi á Húsavík

Ingólfur B. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Mýsköpunar

Hönnunarþing á Húsavík var haldið á dögunum. Hátíðin er vettvangur þar sem hönnun, nýsköpun og samfélag mætast. Yfirskrift Hönnunarþingsins í ár var orka og dagskráin endurspeglaði birtingarmyndir hennar í hönnun og nýsköpun.

Valdimar Halldórsson, fjárfestingarstjóri, sótti Hönnunarþingið heim fyrir hönd Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Fjölbreytt erindi og kynningar voru á hátíðinni og almennt var hátíðin mjög vel heppnuð.

Eitt fyrirtæki í eignasafni sjóðsins, Mýsköpun, kynnti áform sín um örþörungaframleiðslu við Þeistareykjavirkjun í nágrenni Húsavíkur. Sú uppbygging er mjög spennandi og mun hafa mikil margfeldisáhrif á svæðinu á komandi árum. Ingólfur B. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Mýsköpunar, kynnti félagið á hönnunarþinginu.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.