27
.
May
2026

Félög í eignasafni Kríu á klúðurkvöldi Startup Supernova

Steinn Arnar Kjartanson, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, Soffía Kristín Þórðardóttir og Eyþór Máni Steinarsson

Nýverið var klúðurkvöld Startup SuperNova haldið þar sem frumkvöðlar, sprotafyrirtæki og áhugafólk um nýsköpun komu saman til að hlæja, læra og spegla sig í reynslu annarra. Fulltrúar tveggja félaga í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu ásamt tveimur öðrum deildu reynslu sinni að þessu sinni.

Klúðurkvöld er viðburður þar sem reyndir frumkvöðlar segja opinskátt frá mistökum og allskyns óvæntum áskorunum sem þeir hafa upplifað í sprotaferlinu. Kvöldið skapar vettvang fyrir skemmtilegar sögur, samtöl og gefur fólki innsýn í allt það óvænta, kaotíska og lærdómsríka sem fylgir því að byggja upp sprotafyrirtæki. Stemningin var létt, hlý og einlæg – en um leið gagnleg fyrir alla sem eru að feta sína frumkvöðlaleið, hvort sem hugmyndir eru á fyrstu stigum eða orðnar að sprotafyrirtæki í rekstri. Í erindunum þeirra sem deildu sinni reynslu í þetta sinn fléttuðust saman hagnýt ráð, dýrmæt reynsla og heiðarlegar frásagnir af mistökum sem hefðu auðveldlega getað haft alvarlegar afleiðingar – en urðu þess í stað að mikilvægu lærdómsferli.

Reyndir frumkvöðlar deila sínum sögum

  • Steinar Arnar Kjartansson meðstofnandi Humble rifjaði upp krefjandi tímabil þegar hann stóð um tíma einn eftir í daglegum rekstri fyrirtækisins á meðan aðrir sinntu öðrum verkefnum eða voru í fæðingarorlofi. Í álaginu fóru mikilvæg póstsamskipti fram hjá honum með afdrifaríkum afleiðingum og varð sagan áhrifarík áminning um mikilvægi skýrra ferla, forgangsröðunar og góðra samskipta. Humble var stofnað árið 2023 og kom sama ár inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu í gegnum átakið Frumsjóður 2023.
  • Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps, deildi litríkum sögum úr fjármögnunarferli fyrirtækisins og sölustarfi, þar á meðal ferðum til Afríku, sem undirstrikuðu að þolinmæði, húmor og seigla skipta ekki síður máli en góð Excel-skjöl. Keeps var stofnað árið 2023 og kom sama ár inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu í gegnum átakið Frumsjóður 2023.  
  • Eyþór Máni Steinarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Hopp, fjallaði um hvernig það er að vaxa og þróast í skugga stórra samkeppnisaðila og hvernig jafnvægið milli metnaðar og fókus getur reynst viðkvæmt
  • Soffía Kristín Þórðardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri PaxFlow, deildi innsýn í  hvernig það er að starfa í startup-umhverfi innan veggja stórfyrirtækis og dró fram reynslu sína úr ferðaþjónustu í miðju Covid. Hún lýsti því hvernig óvissa, sífelldar breytingar og pressa utan frá geta á sama tíma skapað gríðarlegan þrýsting og einstök tækifæri til að hugsa nýtt, endurhanna ferla og finna lausnir á örskömmum tíma.

Þrátt fyrir ólíkar reynslusögur var meginboðskapur kvöldsins skýr: mistök eru óumflýjanlegur hluti af frumkvöðlaferðalaginu – og þegar þau eru rædd af hreinskilni, húmor og lærdómsvilja verða þau að sameiginlegum auðlindum fyrir allt vistkerfið. Klúðurkvöld Startup SuperNova 2026 minnti á mikilvægi þess að deila reynslu, læra af hvoru öðru og halda áfram – betur í dag en í gær.

Startup SuperNova er samstarfsverkefni KLAK - Icelandic Startups, Nova og Huawei.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.