
Disact hefur lokið fjármögnun þar sem félagið sótti hátt í 85 milljónir króna frá fjárfestum. Disact er eitt þeirra félaga sem valin voru til þátttöku í átaki Nýsköpunarsjóðisin Kríu, Frumsjóður 2025.
Disact er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun, forvörnum og eftirfylgni vegna myglu, örvera, baktería og loftgæða í húsnæði. Félagið byggir á rannsóknum, vísindum og viðurkenndum lausnum og býður heildstæða nálgun þar sem vandamál eru greind, meðhöndluð og þeim fylgt eftir með lausnum sem stuðla að heilnæmu innilofti til framtíðar. Vöruframboð Disact nær meðal annars til greininga á myglu, örverum og bakteríum með Mycometer-tækni, sem gefur mælanlega mynd af umfangi mengunar í húsnæði, meðhöndlunar með sérhæfðri tækni og efnaformúlu Disact, loftgæðamæla og fyrirbyggjandi lausna og eftirfylgni með ActivePure loftgæðatækni.
ActivePure er viðurkennd tækni sem er meðal annars notuð innan heilbrigðisstofnana og er skráð sem FDA Class II lækningatæki. Tæknin byggir á oxandi sameindum og er hluti af framtíðarsýn Disact að gera betri loftgæði aðgengilegri fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili.
„Við viljum sjá fleiri hafa jafn mikla ástríðu fyrir góðum loftgæðum og við — hvort sem það er í eigin húsnæði, á vinnustöðum, í skólum, leikskólum, heilbrigðisstofnunum eða öðrum rýmum þar sem fólk dvelur daglega,“ segir Sólveig R. Gunnarsdóttir, stjórnarformaður Disact í fréttatilkynningu sem birtist á vb.is.
Hún segir fjármögnunina marka mikilvæg tímamót fyrir félagið.
„Við erum mjög ánægð með það traust sem félagið hefur fengið frá fjárfestum. Þessi áfangi væri ekki mögulegur án frábærra meðmæla og trausts viðskiptavina okkar í gegnum árin. Aðkoma Kríu Nýsköpunarsjóðs og nýrra hluthafa styrkir Disact verulega og gerir okkur kleift að fylgja eftir þeim mikla áhuga sem við finnum á markaði.“
Hún segir að næsta skref sé að auka aðgengi að mælingum, greiningum og forvörnum.
„Við teljum að loftgæðamælar/loftgæðavöktun eigi heima á öllum vinnustöðum, leikskólum og grunnskólum landsins. Með betri gögnum er hægt að greina vandamál fyrr, bregðast hraðar við og taka upplýstar ákvarðanir um húsnæði og heilsu fólks.“
Fjármagnið verður að hennar sögn nýtt til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins, efla sölu- og markaðsstarf, styrkja þjónustugetu og byggja upp lausnir félagsins fyrir fyrirtæki, opinbera aðila, fasteignafélög, heilbrigðisgeirann, skóla og aðra rekstraraðila húsnæðis.
Samhliða fjármögnuninni hafi Disact unnið að öflugum samstarfssamningum við lykilaðila á markaði, meðal annars við Daga, eitt stærsta ræstinga- og þjónustufyrirtæki landsins. Slík samstörf flýti fyrir innleiðingu lausna Disact og geri félaginu kleift að þjóna stærri hópi viðskiptavina.