
Íslenska tæknifyrirtækið Sowilo ehf., sem þróar gervigreindarlausnina Catecut, hefur gefið út Shopify-app sitt í Shopify App Store í kjölfar þess að hafa lokið frumfjármögnun félagsins. Catecut er eitt þeirra félaga sem valið var til fjárfestingar í átaki Nýsköpunarsjóðsins Kríu Frumsjóður 2025.
Catecut er kerfisóháð lausn fyrir tískuiðnaðinn sem nýtir sér eigin gervigreind til að greina vöruflokka og hönnunareiginleika út frá myndum. Lausnin býr síðan sjálfkrafa til vörutitla, vörulýsingar, lýsigögn, alt-texta, SEO- og GEO-merki og annað efni sem þarf til að fylla út vörusíður netverslana. Catecut þjónustar nú þegar viðskiptavini í fatnaðar- og skartgripaverslun í Bandaríkjunum og hefur einnig prófað lausn sína með alþjóðlega þekktum smásölufyrirtækjum.
Appið er nú aðgengilegt um allan heim í Shopify App Store og er notað beint innan stjórnborðs Shopify. Lausnin gerir fyrirtækjum kleift að búa til vöruefni sem samræmist vörumerkinu þeirra, styður mörg tungumál, styður sérsniðnar vörusíður og getur uppfært bæði nýjar og núverandi vörur með nýju efni, alt-texta mynda, lýsigögnum og SEO- og GEO-tags og metafields.
Útgáfa Catecut Shopify-appsins kemur í kjölfar frumfjármögnunar Sowilo, með þátttöku frá Kríu, TGC Capital frá Hollandi og Indlandi, auk nokkurra englafjárfesta frá Íslandi og Ástralíu.
Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, stofnandi og forstjóri Sowilo (Catecut):
„Við erum afar ánægð með að hafa fengið öfluga og reynslumikla fjárfesta með okkur í lið þegar við stækkum Catecut inn á nýja markaði og dreifileiðir. Shopify-appið gerir okkur kleift að ná til þúsunda tískuvörumerkja um allan heim og styður við næsta vaxtarskeið fyrirtækisins.“
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu
“Catecut er eitt þeirra fyrirtækja sem var valið til fjárfestingar í gegnum nýlegt fjárfestingarátak Frumsjóðs 25. Það segir sitt að Catecut var meðal þeirra 11 fyrirtækja sem valin voru í lokaúrtaki úr hópi alls 88 umsækjenda. Við hlökkum til að fylgjast með vegferð fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi vöxt þess á komandi árum.“
Í desember 2025 hlaut Sowilo einnig styrk úr Tækniþróunarsjóði til að styðja markaðssókn Catecut á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu, meðal annars í Singapúr, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Sem hluti af þeirri vegferð var Catecut valið meðal fyrirtækja á NRF APAC Big Show Innovator Showcase á vegum National Retail Federation í júní 2026 og mun jafnframt sýna á The Retail Show í Melbourne í Ástralíu í september.
Næstu skref fyrirtækisins eru að auka notkun Catecut meðal Shopify-verslana í Norður-Ameríku og Evrópu, samhliða því að byggja upp viðskiptasambönd og markaðshlutdeild á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu.