13
.
February
2026

Bara tala hlýtur 25 milljóna króna styrk

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Gunnar Geirdal, framkvæmdastjóri Bara tala. Ljósmynd Birgir Ísleifur Gunnarsson

Máltæknifyrirtækið Bara tala hefur hlotið 25 milljóna króna styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til þróunarverkefnis sem miðar að því að efla íslenskunám nemenda með annað móðurmál en íslensku í framhaldsskólum landsins. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Tækniskólann, Verzlunarskóla Íslands, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann á Húsavík og hefur það að markmiði að brúa bilið milli tungumálanáms og fagnáms á framhaldsskólastigi.

Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands voru um 9% framhaldsskólanema árið 2024 af erlendum uppruna og er hlutfallið víða enn hærra innan einstakra námsbrauta.

„Fyrir þennan hóp getur skortur á sérhæfðum námsorðaforða orðið raunveruleg hindrun í námi, jafnvel þegar áhugi, hæfni og vilji til náms eru til staðar. Þörfin á hagnýtum og markvissum námsstuðningi er því mikil, sérstaklega stuðningi sem gerir nemendum kleift að skilja námsefni, taka virkan þátt í kennslustundum og byggja upp sjálfstraust í notkun íslensku.“

Í dag eru yfir 160 stafræn námskeið í boði í Bara tala, þar sem lögð er áhersla á starfstengt íslenskunám og íslensku sem nýtist í daglegu lífi. Verkefnið felst í þróun stafræns náms- og fagorðaforða sem gerir nemendum kleift að tileinka sér íslensku í beinu samhengi við nám sitt, hvort sem um er að ræða bóknám, tæknigreinar eða verklegt iðnnám.

„Með því að samþætta íslenskuna beint inn í fagnám nemenda, í stafrænu og aðgengilegu formi, er brugðist við einni helstu áskorun aðfluttra nemenda í framhaldsskólum, þar sem íslenskunámið hefur oftar verið hliðstætt náminu fremur en samofið því,“ segir í tilkynningu frá Bara tala.

Í nýlegri úttekt OECD á stöðu innflytjenda á Íslandi er íslenskan sögð lykilforsenda inngildingar í samfélaginu, bæði í menntakerfinu og á vinnumarkaði. Þar kemur fram að aðeins um 18% innflytjenda á Íslandi segjast hafa góða kunnáttu í íslensku, sem er lægsta hlutfall meðal OECD-ríkja.

„Skortur á íslenskukunnáttu er jafnframt ein helsta ástæða þess að fólk nýti ekki menntun sína og færni til fulls. OECD leggur áherslu á að efla þurfi aðgengilegt, sveigjanlegt og hagnýtt íslenskunám sem tengist beint námi, starfi og daglegu lífi, þar sem stafrænar lausnir á borð við Bara tala gegna lykilhlutverki.“

Bara tala var stofnað árið 2023 og kom inn í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2024.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.