7
.
October
2026

Atmonia í umfjöllun hjá AgFunderNews

Helga Dögg Flosadóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Atmonia

‍Atmonia, eitt af félögum í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, var nýlega til umfjöllunar hjá alþjóðlega nýsköpunar- og fjárfestingarmiðlinum AgFunderNews.

Þar er rætt  við Helgu Dögg Flosadóttur, meðstofnanda og framkvæmdastjóra Atmonia, um tæknina sem fyrirtækið hefur þróað til framleiðslu á grænu ammoníaki og næstu skref í uppbyggingu fyrirtækisins.

Atmonia þróar skalanlegt kerfi fyrir rafefna-framleiðslu á ammoníaki með lofti, vatni og rafmagni án þess að losa gróðurhúsalofttegundir. Með tækninni er ekki þörf á að framleiða og geyma vetni líkt og í hefðbundinni ammoníakframleiðslu.

Fyrirtækið hefur nú sýnt fram á að tæknin virkar og næsta skref er að þróa áfram þessa lausn. Markmið Atmonia er að þróa framleiðslukerfi í 40 feta gámi sem getur framleitt um 150 tonn af ammoníaki á ári.

Horfa má og lesa viðtalið við Helgu Dögg í heild sinni á AgFunderNews.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.