
Hugbúnaðarfyrirtækið Ankeri hefur opnað útibú í Singapúr. Singapúr er miðstöð í alþjóðlegum sjóflutningum og mun nýja skrifstofan styrkja getu Ankeris til að styðja við viðskiptavini um allt Asíu- og Kyrrahafssvæðið og er viðbót við núverandi starfsemi í Evrópu.
Ankeri þjónustar bæði skipaeigendur sem reka flutningaskip og útgerðaraðila sem leigja til sín skip. Fyrirtækið hjálpar til við að búa til gögn með það að markmiði að draga úr sóun, bæta rekstur og búa til réttu hvatana til að skapa hagræðingu hjá báðum aðilum.
Ankeri vinnur með leiðandi fyrirtækjum í gámaflutningageiranum, þar á meðal Hapag-Lloyd, Seaspan, SFL, Global Ship Lease og Ernst Russ.
Ankeri var stofnað árið 2016 og hefur verið í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu frá árinu 2018.