SagaReg

Sjálfvirk gerð lyfjaskráningarumsókna

SagaReg er íslenskt fyrirtæki sem þróar gervigreindar lausn til að sjálfvirknivæða gerð lyfjaskráningarumsóknar. Með lausn SagaReg geta lyfjafyrirtæki stytt skráningarferlið verulega, dregið úr kostnaði og mannaflaþörf, og aukið gæði og samræmi gagna sem lögð eru fyrir lyfjayfirvöld á borð við FDA og EMA. SagaReg hefur þegar unnið að þróunar- og prófunarverkefnum með alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum og hefur fengið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís og Íslandsbank, sigraði Gulleggið, stærstu nýsköpunarkeppni Íslands vorið 2025. Stofnendur SagaReg búa yfir djúpri reynslu úr lyfjaiðnaði og hugbúnaðarþróun og hafa unnið beint að skráningarverkefnum hjá leiðandi líftæknifyrirtækjum. Með SagaReg fá lyfjafyrirtæki forskot í samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum þar sem hraði og nákvæmni í skráningarferlinu skipta sköpum við að koma lyfjum á markað.
sagareg.com
Stofnað
2024
Fyrsta aðkoma sjóðsins
2025
Útganga Nýsköpunarsjóðs
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.