15
.
May
2026

Tonik í Færeyjum – vel heppnuð ráðstefna

Frá ráðstefnunni

Nýsköpunarráðstefnan Tonik í Þórshöfn í Færeyjum fór fram dagana 7.-8. maí síðastliðinn. Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldið. Henni hefur vaxið fiskur um hrygg og heppnaðist mjög vel í ár. Á ráðstefnunni blandast saman nýsköpun, fræðsluerindi og listviðburðir. Þátttakendur voru nokkur hundruð og um helmingur þeirra var utan Færeyja. Það var því líf og fjör í Þórshöfn þessa daga. Valdimar Halldórsson fjárfestingarstjóri sótti ráðstefnuna í ár sem fulltrúi Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Nokkrir tugir Íslendinga tóku þátt í ráðstefnunni, þ.m.t. þónokkur íslensk sprotafyrirtæki sem kynntu sig fyrir fjárfestum, fyrirtæki sín og tóku þátt í svokallaðri „pitch-keppni“ sem fram fór á ráðstefnunni.

Í tengslum við Tonik var boðið uppá skoðunarferðir í önnur byggðarlög utan Þórshafnar, t.d. fyrirtækjaheimsóknir í Klaksvik og Runavik. Einnig var þátttakendum boðið í skoðunarferð um stærstu jarðgöng Færeyja þar sem stoppað var inní þeim miðjum og boðið uppá færeyskan mat og lifandi tónlist. Hópi íslenskra þátttakenda var að auki boðið í sérstaka skoðunarferð í fyrirtækin Framherja og Bergfrost í Fuglafirði. Allar þessar heimsóknir voru fróðlegar og vel heppnaðar og alls staðar var tekið vel á móti fólki.

Þrjú fyrirtæki sem eru í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu tóku þátt í ráðstefnunni, Sea Thru, Grænafl og Sundra. Þessi félög komu inn í eignasafn í gegnum fjárfestingarátök Nýsköpunarsjóðsns Kríu árin 2023 og 2025. Á ráðstefnunni héldu Drift EA, SSNE og Hraðið sameiginlegan viðburð þar sem sérstök áhersla var lögð á að kynna nýsköpunarsenuna á Norðurlandi eystra. Nordic Ignite nýsköpunarsjóðurinn tók þátt í ráðstefnunni í ár líkt og fyrri ár og tók Ragnheiður Magnúsdóttir þátt í pallborðsumræðum fyrir hönd sjóðsins.

Á Tonik voru alls 38 fyrirlesarar frá mörgum löndum með kynningar af ýmsu tagi. Þar af voru fimm frá Íslandi. Áberandi þema í erindum var að lítil lönd eiga að hugsa stórt og hugmyndir sem verða til utan stórborga og fjölmennra landa geta í dag, með þeirri tækni sem er til staðar, orðið að stórum mikilvægum alþjóðlegum fyrirtækjum/verkefnum.

Tonik 2026 var heilt yfir vel heppnuð. Það er greinilegt að Færeyingar ætla sér stóra hluti í nýsköpun með því meðal annars að sækja sér þekkingar til annarra landa. Ráðstefnan skapar tækifæri til samstarfs og þekkingarmiðlunar hjá þeim sem tóku þátt í Tonik. Skipulag ráðstefnunnar var gott og Færeyingar voru höfðingjar heim að sækja.

Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá Færeyjum.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.