
Þrjú félög í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu eru meðal þeirra verkefna sem hljóta styrki í vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs árið 2026. Alls voru 49 verkefni valin til styrkveitinga að þessu sinni og nemur heildarfjárhæð nýrra styrkja 803 milljónum króna.
Félögin í eignasafninu sem voru valin til styrkveitinga Sweeply, Álvit og Hefring.
Sweeply fær styrk í flokknum Vöxtur fyrir verkefnið Sjálfvirk gervigreind fyrir hótelrekstur. Sweeply þróar hugbúnaðarlausn sem sjálfvirknivæðir dagleg verkefni hjá starfsfólki hótela- og gististaða. Í lausninni skilgreina stjórnendur hvaða verkefni þarf að vinna og síðan framreiðir lausnin réttu verkefnin daglega, vikulega, mánaðarlega eða árlega. Sweeply var stofnað árið 2019 og var fyrsta aðkoma sjóðsins að félaginu árið 2020.
Álvit hlýtur styrk í flokknum Markaðsþróun fyrir verkefnið Umhverfisvænn Kragasalli og varnarefni fyrir ál og kíslilver – Arftaki koltjörubiks. Markmið Álvits er að hreinsa upp orkufrekan iðnað og efnaiðnað með því að skipta út krabbameinsvaldandi koltjörubiki út fyrir nýja umhverfisvæna lausn. Álvit var stofnað árið 2020 og var eitt þeirra félaga sem kom inn í sjóðinn í gegnum átakið Frumsjóður 2023.
Hefring hlýtur styrk í flokknum Markaðssókn fyrir verkefnið Siglt í sókn á Kanadamarkað. Hefring ehf. var stofnað til að þróa leiðbeinandi siglingakerfi, Hefring Marine, fyrir báta og smærri skip. Hefring var stofnað árið 2018 og kom inn í eignasafn sjóðsins árið 2019.
Úthlutun Tækniþróunarsjóðs endurspeglar fjölbreytni íslenskrar nýsköpunar og nær meðal annars til verkefna á sviði gervigreindar, umhverfistækni, orkuskipta, hugbúnaðarlausna og líftækni.
Við óskum félögunum til hamingju með styrkinn.