
Uppskeruhátíð verkefnisins Fyrirtækjasmiðja Ungra frumkvöðla – JA Iceland fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl síðastliðinn. Alls voru 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum keppninnar árið 2026.
Fyrirtækið Þekktu landið! stóð uppi sem sigurvegari og var valið fyrirtæki ársins 2026. Fyrirtækið framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil þar sem markmiðið er að þekkja staðsetningar þekktra staða á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger.
Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands á Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Nýsköpunarsjóðurinn Kría styrkti sigurliðið um 300 þúsund krónur vegna þátttöku í keppninni. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“
Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans og Guðfinna Helgadóttir rekstrarstjóri á viðskiptasviði Arion banka veittu verðlaun í eftirfarandi flokkum:
Fyrirtæki ársins sem keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7. – 10. júlí.
Þekktu landið! Verslunarskóli Íslands
Fyrirtæki ársins 2. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18. - 21. maí (samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, en 30 þátttakendur fara héðan)
Grásíða, Verslunarskóla Íslands
Fyrirtæki ársins 3. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.- 21. maí
Eyjakonfekt, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Hlýja Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Blær, Menntaskólinn við Sund
Norður Rækja, Verkmenntaskólinn á Akureyri
Hugljómi, Verslunarskóli Íslands
Framtak, Tækniskólinn
Krílabiti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Sjávardjásn, Menntaskólinn við Sund
Brauðbox, Tækniskólinn
Land, Verslunarskóli Íslands
HafBit, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Við óskum þessum öflugu og skapandi ungu frumkvöðlum innilega til hamingju með árangurinn, sem og öllum þeim sem tóku þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni.