21
.
May
2025

Stórglæsileg Nýsköpunarvika að baki

Iceland Innovation Week var haldin í Reykjavík dagana 12. til 16. maí síðastliðinn. Þúsundir manns sóttu þá viðburði sem voru í gangi og þar kenndi svo sannarlega ýmissa grasa. Aðaldagskrá vikunnar var haldin í Kolaportinu og Hafnartorgi, dagana 14. og 15. maí, en aðrir hliðarviðburðir voru haldnir víða um bæ alla vikuna og voru mjög vel sóttir.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók að sjálfsögðu þátt í Nýsköpunarvikunni og þar á meðal með viðburðunum „Investor & Founders Talk - Practical Information: Kría & FKA þar sem farið var yfir hvernig nýsköpunarfyrirtæki geta fengið fjárfestingu og hvað fjárfestar vilja vita sem og um fjárfestingar til kvenna. Að auki vorum við með viðburðinn Darts & Deals - Happy Hour sem við héldum í samstarfi við Nordic Ignite, Drift og IceBan. En þar leiddu frumkvöðlar og fjárfestar hesta sína saman í skemmtilegri veislu og pílukasti.

Við viljum óska þeim Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, stofnendum Nýsköpunarvikunnar, innilega til hamingju með stórglæsilega viku og hlökkum til að taka þátt í henni á næsta ári. Nýsköpunarvikan verður haldin dagana 19.-21. maí 2026.


Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.