Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, Magnús Ingi Óskarsson frá KLAK og Ragnheiður H. Magnúsdóttir frá Nordic Ignite tóku þátt í Startup Landið vinnustofu í Borgarnesi 2.október síðastliðinn. Á vinnustofunni áttu þau m.a. hraðstefnumót með teymunum sem taka þátt í viðskiptahraðlinum sem stendur yfir í sjö vikur.
Startup Landið
Startup Landið er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni. Alls voru 14 fjölbreytt verkefni víðs vegar að af landinu valin til þátttöku í ár. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. Startup Landið er viðskiptahraðall sem veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins tæki, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að færa hugmyndir sínar á næsta stig. Á næstu mánuðum munu þátttakendur sækja stífar vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptamódela, fjármögnun og markaðssetningu.
Hraðallinn hófst 24. september og stendur fram í byrjun nóvember. Á tímabilinu fara fram vinnustofur á völdum stöðum á landsbyggðinni þar sem teymin vinna meðal annars að þróun viðskiptamódela, fjármögnun og markaðssetningu verkefna sinna.
Þátttakendur ársins endurspegla mikla fjölbreytni í íslenskri nýsköpun, allt frá matvælaframleiðslu, sjálfbærni verkefnum og verkefni tengt heilsueflingu yfir í tækni-, ferða- og þjónustulausnir.
Þau verkefni sem taka þátt í Startup Landinu 2026 eru:
- Ullarkögglar: Höfðar til hringrásarhugarfars með framleiðslu á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum. (Suðurland)
- Korngrís Bjór: Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi. (Suðurland)
- Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus : Uppbygging á heilsu- og sauna-upplifun sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu. (Suðurnes)
- Kraftý Café : Nýstárleg kaffihúsa- og upplifunarhönnun sem eflir samfélag og menningarlíf. (Suðurnes)
- Byrjum / Fjarheilbrigðistorg : Miðlægur stafrænn vettvangur sem safnar saman fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi. (Vestifrðir)
- Valkyrju Ævintýri: Uppbygging á heilsársferðaþjónustu og upplifun á Vestfjörðum. (Vestfirðir)
- Snigill - smár snigill - stórt prótein: Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvælaframleiðslu og próteinræktun á Íslandi. (Vesturland)
- Sif's Hair Atelier : Sérhæfðar, náttúrulegar og lúxus hárlausnir sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi. (Vesturland)
- Okkar norður ehf. : Samstarfs- og markaðslíkan fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins. (Norðurland vestra)
- BlómAría : Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð. (Norðurland eystra)
- Dálæti : Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja nostalgíu og kátínu. (Austurland)
- Fjarðarhjól ehf. : Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða. (Austurland)
- Syðra Holt ehf. : Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal. (Norðurland eystra)
- AllergyID: Tæknilausn og app sem auðveldar fólki með óþol og ofnæmi að finna viðeigandi matvæli og þjónustu. (Norðurland eystra))