20
.
November
2026

Proceon hlýtur styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka

Hópurinn sem hlaut styrki

Proceon er meðal átján nýsköpunarverkefna sem hlutu styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka í ár. Alls úthlutaði sjóðurinn 70 milljónum króna, sem er hæsta úthlutun hans frá stofnun.

Styrkirnir nema á bilinu einni til fimm milljónum króna og er markmið þeirra að styðja við íslenskt frumkvöðlastarf og efla nýsköpun á fyrstu stigum.

Frá stofnun hefur Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka veitt tæplega 400 milljónum króna til nýsköpunarverkefna. KLAK – Icelandic Startups annast mat á umsóknum fyrir sjóðinn.

Proceon er eitt þeirra fyrirtækja sem komu inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu í gegnum fjárfestingaátakið Frumsjóð 2025.

Við hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu óskum Proceon innilega til hamingju með styrkinn!

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.