7
.
August
2025

Opið fyrir tilnefningar í Vaxtarsprotann 2025

Frá afhendingu Vaxtarsprotans 2024

Við vekjum athygli á því að hægt er að senda inn tilnefningar í Vaxtarsprotann 2025 fram til 31. ágúst. Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónum króna. Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna.

Við hvetjum ykkur öll til að senda inn rafræna tilnefningu hér. En Vaxtarsprotinn verður afhentur 10. september kl. 9 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

Skilyrði:

- Frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu

- Fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar

Hvað er Vaxtarsprotinn? 

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Það verður í 19. skipti sem Vaxtarsprotinn verður afhentur en eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Abler (2024), Hopp (2023), Controlant (2022), 1939 Games (2021) Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.