23
.
October
2026

Nýsköpunarþing 2026 - Hugvit og tækifæri um allt land

Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Rannís, Íslandsstofa og Hugverkastofan bjóða til Nýsköpunarþings 2026 í Grósku þann 29. október kl. 14:00-16:00.  

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á þinginu

Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að nýsköpun á landsbyggðinni - tækifærum, áskorunum og þeim fjölbreyttu hugmyndum sem verða að veruleika um allt land.

Skráning á Nýsköpunarþing

‍

Á þinginu koma öflug fyrirtæki og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum og segja frá sinni reynslu af því að byggja upp og þróa nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins. Hvað þarf til að góð hugmynd geti vaxið og dafnað á landsbyggðinni? Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?

Með fjölbreyttum erindum og samtali verður leitast við að varpa ljósi á kraftinn í nýsköpun um land allt og þær aðstæður sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun. Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.

Dagskrá*

Opnunarávarp

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís

Setning Nýsköpunarþings 2026

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

Tækifæri til nýsköpunar í ferðaþjónustu

Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima

Öflug samvinna í vistkerfi nýsköpunar

Sesselja Reynisdóttir, Drift EA

Nýsköpun í verki

Stutt erindi frá fyrirtækjum í nýsköpun

Startup Landið

Anna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra

Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Pallborðsumræður

Hvað þarf til að nýsköpun þrífist um land allt?

Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.

Skráning á Nýsköpunarþing

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Morgunkaffi í Grósku

Stofnanirnar sem standa sameiginlega að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK og IceBAN, bjóða í morgunkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast betur þeirri þjónustu, stuðningi og tækifærum sem þær bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum. Fulltrúar kynna starfsemi sína í stuttu máli og að því loknu gefst svigrúm fyrir samtal, spurningar og ráðgjöf.

Hvenær: Fimmtudaginn 29. október kl. 10:00 til 11:30

Hvar: Hjá Íslandsstofu í Grósku - Hugmyndahúsi, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.

Skráning í morgunkaffi

‍

Þingið er haldið árlega í samstarfi Nýsköpunarsjóðsins Kríu, Rannís, Íslandsstofu og Hugverkastofunnar.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.