
Nýsköpunarsjóðurinn Kría (Kría) verður stuðningsaðili HönnunarÞings 2026, hátíðar hönnunar og nýsköpunar sem Hraðið - miðstöð nýsköpunar á Húsavík stendur fyrir dagana 25.–26. september. Í ár verður áherslan á orku sem er þriðji þráður hátíðarinnar og verður leitast við að skoða hvernig hönnun, nýsköpun og orka mætast og geta saman skapað nýjar hugmyndir, lausnir og tækifæri.
HönnunarÞing hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu sem vettvangur þar sem ólíkar greinar, fólk og hugmyndir koma saman. Hátíðin byggir á þeirri hugmynd að nýsköpun verði oft til þegar ólík sjónarhorn mætast og nýjar tengingar verða til.
Meðal þátttakenda eru hönnuðir, frumkvöðlar, fyrirtæki og sérfræðingar úr ólíkum greinum. Dagskráin gefur þátttakendum tækifæri til að kynnast nýjum hugmyndum, deila reynslu og tengjast fólki sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði hönnunar og nýsköpunar.
Eitt fyrirtæki í eignasafni Kríu, örþörungafyrirtækið Mýsköpun, er þátttakandi í hátíðinni á Húsavík. Dr. Ingólfur B. Gunnarsson framkvæmdastjóri Mýsköpunar mun kynna starfsemi félagsins á HönnunarÞinginu á laugardaginn kl 16:30. Þá mun Ragnheiður H. Magnúsdóttir hjá Nordic Ignite einnig vera með erindi. Nordic Ignite er samstarfsaðili Kríu í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi.
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu:
„Kría leggur áherslu á að styðja við öflugt nýsköpunarumhverfi um allt land. Viðburðir eins og HönnunarÞing skapa mikilvægan vettvang fyrir fólk til að hittast, deila hugmyndum og byggja upp tengsl sem geta orðið upphaf að nýjum verkefnum og tækifærum“.
Hér má nálgast fjölbreytta dagskrá HönnunarÞings á Húsavík.