30
.
March
2023

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fjárfestir í Mýsköpun

Undirritun samninga um fjármögnun fór fram á fjárfestahátíðinni Norðanátt sem haldin var á Siglufirði og á myndinni eru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðherra, Halldór Jóhannsson frá KEA, þær Júlía K. Björke og Dagbjört Hafliðadóttir frá Mýsköpun og þau Hrönn Greipsdóttir og Örn Viðar Skúlason frá Nýsköpunarsjóði.

Líftæknifyrirtækið Mýsköpun ehf hefur lokið um 100 milljóna króna hlutafjáraukningu, sem leidd er af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Aðrir stórir fjárfestar í þessari hlutafjáraukningu eru Upphaf - fjárfestingasjóður KEA, Jón Ingi Hinriksson ehf í Mývatnssveit, Jarðböðin og Fjárfestingafélag Þingeyinga.  

Mýsköpun ehf. sem stofnað var af hópi heimamanna í Mývatnssveit hefur um nokkurra ára skeið unnið að ýmsum rannsóknum á þörungum t.d. með því að einangra, greina og ákvarða ræktunarskilyrði örþörunga úr Mývatni, með framleiðslu og sölu í huga. Félagið stefnir að framleiðslu á tveimur mismunandi þörungum; Spirulina og Chlorella.  

Þar sem örþörungar hafa einstaklega hátt næringargildi eru þeir taldir geta skipt verulega máli fyrir fæðuframboð í framtíðinni t.a.m. sem fæðubótarefni, innihaldsefni í mat, fóður m.a. fyrir fiskeldi og mikilvæg efni í lyfjaiðnaði. Þekking á notagildi er til staðar og þörungar eru víða ræktaðir. Sérstaða Mýsköpunar er ekki síst fólgin í staðsetningu og uppruna þörunganna sem þrífast m.a. vegna jarðhita á svæðinu.

Þessi hlutafjáraukning mun fjármagna uppbyggingu á framleiðslu þörunga í litlum skala sem er nauðsynlegur undanfari stærri uppbyggingar á komandi árum. Markmiðið er að ná fyrst tökum á framleiðslunni í afmarkaðri einingu, tryggja gæðin og opna á söluleiðir. Mýsköpun er nú til húsa í húsnæði Landsvirkjunar við Bjarnarflag en Landsvirkjun hefur á undanförnum árum stutt vel við bakið á Mýsköpun á ýmsan hátt. Á næstu mánuðum verða áætlanir um uppbyggingu á framleiðslu í fullri stærð útfærðar betur en sú uppbygging gæti kostað allt að 3 milljörðum króna.  

Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:

„Við erum mög ánægð með aðkomu sjóðsins að uppbyggingu Mýsköpunar. Fjárfestingin er í anda áherslna Nýsköpunarsjóða um að koma snemma að sprotafyrirtækjum, fá með einkafjárfesta og brúa bil félaganna þar til verkefnin eru orðin nægilega þroskuð fyrir aðra fjárfestingarsjóði. Þá er afar ánægjulegt að styðja við verkefni sem allt í senn stuðlar að bættu fæðuframboði, styður við markmið í loftlagsmálum, skapar störf, er staðsett á Norðurlandi og leitt af þremur öflugum konum sem koma með verðmæta sérfræðiþekkingu á verkefninu.“

Dagbjört Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Mýsköpunar:

„Þessi fjármögnun skapar okkur andrými til að koma upp smáskalaframleiðslu á Spírulinu og Chlorellu í Bjarnarflagi við Mývatn og útfæra áætlanir okkar um frekari uppbyggingu framleiðslunnar á komandi árum. Það er mikill áfangi og viðurkenning fyrir okkur að fá Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins til að leiða þessa fjármögnun og finna góðan meðbyr við verkefnið frá öflugum aðilum á Norðurlandi.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.