30
.
October
2026

Nýsköpun og tækifæri um allt land í sviðsljósinu á Nýsköpunarþingi 2026

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, setti þingið með opnunarvarpi

Nýsköpunarþing 2026 fór fram í Grósku fimmtudaginn 29. október undir yfirskriftinni „Hugvit og tækifæri um allt land“. Að þinginu stóðu Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Rannís, Íslandsstofa og Hugverkastofan. Að þessu sinni var sjónum beint að nýsköpun á landsbyggðinni, þeim tækifærum og áskorunum sem þar felast og fjölbreyttum hugmyndum sem verða að veruleika um allt land.

Morgunkaffi með stuðningsaðilum nýsköpunar

Dagurinn hófst á morgunkaffi í boði þeirra stofnana sem standa að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK og IceBAN. Þar gafst gestum tækifæri til að kynna sér þá fjölbreyttu þjónustu, stuðning og tækifæri sem standa frumkvöðlum og fyrirtækjum til boða.

Fulltrúar þátttakenda kynntu starfsemi sína í stuttu máli og að kynningum loknum gafst gestum tækifæri til að ræða beint við fulltrúana, bera upp spurningar og fá ráðgjöf. Morgunkaffið skapaði þannig vettvang fyrir samtal, tengslamyndun og miðlun upplýsinga um þau úrræði sem styðja við vöxt og þróun nýsköpunarfyrirtækja.

Nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli

Á Nýsköpunarþingi 2026 var sjónum beint að nýsköpun á landsbyggðinni.

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, setti þingið með opnunarávarpi. Í kjölfarið sagði Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima, frá uppbyggingu fyrirtækisins og hvernig nýsköpun hefur verið drifkraftur í þróun þess frá upphafi. Sigmar Bjarni Sigurðsson hjá Drift EA kynnti starfsemi Drift EA og Ignite Nordic en hann er forstöðumaður Ignite Nordic sem er með það markmið að efla nýsköpun inann starfandi fyrirtækja og samvinnu við frumkvöðla. Þóra Ýr Árnadóttir, gæðastjóri hjá Primex, Anna Nikulásdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Grammatek og Sigrún Finna Snædal , stofnandi og framkvæmdastjóri, Stökkfisks, sögðu frá starfsemi fyrirtækja sinna og deildu reynslu sinni af því að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki á landsbyggðinni.

Þá kynntu Anna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), og Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), viðskiptahraðalinn Startup Landið og þau tækifæri sem hann býður frumkvöðlum á landsbyggðinni.

Freyr Eyjólfsson var fundarstjóri þingsins og stýrði jafnframt pallborðsumræðum þar sem Knútur Rafn Ármann, Anna Nikulásdóttir og Sigrún Finna Snædal ræddu nýsköpun og uppbyggingu fyrirtækja á landsbyggðinni.

Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026

Í lok þingsins afhenti Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026. Að þessu sinni hlaut nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies verðlaunin. Lesa nánar um Treble Technologies og Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.