12
.
November
2026

Nýsköpun á tímum gervigreindar

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtak Ventures og gestir viðburðarins

Hvaða tækifæri og áskoranir skapar gervigreind fyrir nýsköpunarfyrirtæki? Sú spurning var í brennidepli á morgunverðarfundi Nýsköpunarsjóðsins Kríu þann 11. nóvember þar sem sérfræðingar, fjárfestar og frumkvöðlar fjölluðu um áhrif gervigreindar á rekstur fyrirtækja, vöruþróun og fjárfestingar.

Fundurinn var haldinn fyrir félög í eignasafni Kríu og var markmiðið að varpa ljósi á hvernig nýsköpunarfyrirtæki geta nýtt sér tækifærin sem felast í hraðri þróun gervigreindar og tekist á við þær áskoranir sem henni fylgja.

Hvar liggur raunverulegt virði gervigreindar?

Gísli Ragnar Guðmundsson, Country Lead hjá New Nordics AI, flutti aðalerindi fundarins undir yfirskriftinni Gervigreind í framkvæmd: Hvar liggur raunverulega virðið?

Í erindi sínu fjallaði Gísli um hraða þróun gervigreindar og hvernig fyrirtæki geta nýtt tæknina til að skapa raunveruleg verðmæti. Hann dró meðal annars fram muninn á tæknilegri getu gervigreindarlíkana og getu fyrirtækja til að nýta þau í starfsemi sinni. Þótt tækninni fleygi hratt fram ráðist árangurinn ekki eingöngu af því hvað gervigreindin geti gert, heldur hvernig fyrirtæki innleiði hana í verkferla sína og daglega starfsemi.

Gísli fjallaði jafnframt um þróun sjálfvirkra gervigreindarlausna, svokallaðra AI-agenta, sem geta tekið að sér sífellt flóknari verkefni. Slíkar lausnir geta gjörbreytt vinnubrögðum, aukið framleiðni og skapað ný tækifæri fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Á sama tíma kallar þróunin á nýja hugsun um skipulag, ákvarðanatöku og hlutverk starfsfólks.

Megináhersla erindisins var að raunverulegt virði gervigreindar felist ekki aðeins í tækninni sjálfri heldur í því hvernig hún er nýtt til að leysa verkefni, bæta þjónustu og skapa verðmæti.

Breyttar forsendur fjárfestinga og vöruþróunar

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtak Ventures, fjallaði um áhrif gervigreindar á fjárfestingar og þær breytingar sem orðið hafa á alþjóðlegum áhættufjárfestingamarkaði. Hún benti meðal annars á að sífellt stærri hluti áhættufjármagns renni til gervigreindarfyrirtækja og að tæknin sé að breyta rekstrarforsendum sprotafyrirtækja. Lítil teymi geti nú náð árangri sem áður krafðist mun meiri mannafla og fjármagns en jafnframt aukist kröfur fjárfesta um skýrt samkeppnisforskot og raunverulega verðmætasköpun.

Andrew Osborne, Head of Product hjá Kara Connect, deildi reynslu fyrirtækisins af innleiðingu gervigreindar í vöruþróun. Kara Connect hefur þróað yfir 40 eigin gervigreindarverkfæri sem hafa meðal annars hraðað þróunarvinnu og aukið afköst teymisins. Andrew lagði áherslu á að gervigreind væri fyrst og fremst verkfæri til að efla starfsfólk og styðja við ákvarðanatöku, fremur en að koma í stað mannlegrar þekkingar og dómgreindar.

Að erindum loknum svöruðu Gísli Ragnar, Svana og Andrew spurningum og gafst fundargestum tækifæri til að ræða þau fjölmörgu tækifæri og áskoranir sem gervigreind skapar fyrir íslensk nýsköpunarfyrirtæki.

Fundurinn undirstrikaði mikilvægi þess að fyrirtæki fylgist vel með þróun gervigreindar og skoði hvernig nýta megi tæknina markvisst til að auka samkeppnishæfni, efla nýsköpun og skapa ný verðmæti.

Ignite Nordic á Íslandi

Í lok fundar kynnti Sigmar Bjarni Sigurðsson, forstöðumaður Ignite Nordic á Íslandi, starfsemi Drift EA og Ignite Nordic. Markmið verkefnisins er að tengja sprotafyrirtæki við rótgróin fyrirtæki og opinbera aðila og skapa þannig ný viðskiptatækifæri fyrir frumkvöðla og efla nýsköpun innan starfandi fyrirtækja.

Við þökkum öllum gestum kærlega fyrir komuna og frummælendum fyrir áhugaverð og fróðleg erindi sem gáfu góða innsýn í tækifæri og áskoranir gervigreindar fyrir nýsköpunarfyrirtæki.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.