11
.
November
2026

MýSköpun áformar hátækniframleiðslu við Þeistareyki

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar. Landsvirkjunarfólkið Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma, Hjalti Páll Ingólfsson, forstöðumaður Þróunar og auðlinda jarðvarma, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, viðskiptastjóri, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður Viðskiptaþróunar og Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar, Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar, Valdimar Halldórsson, stjórnarmaður í MýSköpun og fjárfestingarstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunar hjá Landsvirkjun og Jón Helgi Pétursson, stjórnarformaður MýSköpunar.

Líftæknifyrirtækið MýSköpun, sem er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, hefur undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um afhendingu raforku og nýtingu varma frá Þeistareykjastöð vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar hátækniframleiðslu á náttúrulegu astaxantíni í nágrenni aflstöðvarinnar.

Háþróuð ræktunartækni

Áform MýSköpunar gera ráð fyrir byggingu um 10.000 fermetra sérhæfðrar hátækniframleiðslustöðvar þar sem notuð verður háþróuð ræktunartækni til framleiðslu á astaxantíni úr örþörungnum Haematococcus pluvialis. Astaxantín er verðmætt náttúrulegt andoxunarefni sem meðal annars er nýtt í fæðubótarefni og snyrtivörur á hratt vaxandi alþjóðlegum mörkuðum.

Staðsetning framleiðslunnar við Þeistareyki býður upp á hagstæðar forsendur fyrir orkusækna hátækniframleiðslu þar sem aðgengi að endurnýjanlegri raforku og möguleikar á nýtingu varma frá jarðvarmaaflstöðinni, ásamt náttúrulegum aðstæðum til kælingar, geta stuðlað að hagkvæmum og skilvirkum rekstri.

Gert er ráð fyrir að uppbyggingin fari fram í áföngum og geti til framtíðar skapað allt að 40 sérhæfð og varanleg störf á Norðausturlandi. Stefnt er að því að framkvæmdir við fyrsta áfanga hefjist árið 2027.

Mikilvægur áfangi

„Undirritun þessarar viljayfirlýsingar er mikilvægur áfangi fyrir MýSköpun og færir okkur enn nær því markmiði að byggja upp hátæknivædda líftækniframleiðslu á Þeistareykjum,“ segir Dr. Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar.

Hann segir að aðkoma framtakssjóðsins Landvætta sem kjölfestufjárfestis hafi gegnt lykilhlutverki í undirbúningi verkefnisins.

„Aðgengi að endurnýjanlegri raforku og möguleikar á nýtingu varma frá Þeistareykjastöð eru lykilforsendur þess að við getum byggt upp alþjóðlega samkeppnishæfa framleiðslu sem skapar ný útflutningsverðmæti og styrkir atvinnulíf á Norðausturlandi,“ segir Ingólfur Bragi.

Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar, segir verkefnið falla vel að áherslum fyrirtækisins um betri nýtingu auðlinda á svæðinu.

„Auk þess að afhenda græna raforku skapast tækifæri til að nýta varma frá Þeistareykjastöð. Sá varmi fer annars ónýttur út í umhverfið en getur hér orðið að verðmætum.“

‍

Hér má lesa fréttatilkynninguna sem birtist á vef Landsvirkjunar

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.