21
.
July
2026

Meniga kynnir Fini sem gerir gervigreind banka persónulegri og öflugri

Meniga, sem er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, hefur kynnt til sögunnar Fini, nýja lausn sem gerir bönkum kleift að tengja gervigreindaraðstoðarmenn (e. AI agents) við fjárhagsupplýsingar viðskiptavina á öruggan og persónulegan hátt. Lausnin er þróuð til að styðja við nýja kynslóð samtalsdrifinnar bankaþjónustu þar sem viðskiptavinir geta átt samskipti við bankann á sama hátt og þeir eiga samtöl við gervigreindarforrit.

Í stað þess að fletta í gegnum valmyndir eða leita að upplýsingum á mörgum stöðum geta viðskiptavinir spurt spurninga á borð við: „Hvað eyði ég miklu í áskriftir?“ eða „Hef ég efni á ferð til Ítalíu næsta sumar?“ Fini nýtir raunverulegar fjárhagsupplýsingar viðskiptavinarins til að veita persónuleg svör og getur jafnframt aðstoðað við að framkvæma aðgerðir innan sama samtals.

Lausnin byggir á opnum MCP-staðli (e. Model Context Protocol) og tengir saman gervigreindarlíkön og þá fjárhagsgreind sem þegar er til staðar í kerfum Meniga. Þannig geta bankar nýtt tungumálalíkön sem þeir kjósa, hvort sem það eru GPT, Claude, Gemini eða eigin lausnir, án þess að þurfa að endurbyggja undirliggjandi innviði.

Raj Soni, framkvæmdastjóri Meniga: 

„Þeir bankar sem ná forystu í næstu kynslóð bankaþjónustu verða þeir sem byggja gervigreindarlausnir sínar á raunverulegu fjárhagslegu samhengi. Ekki á almennu spjallmenni, heldur aðstoðarmanni sem þekkir útgjaldamynstur viðskiptavinarins, markmið hans og komandi reikninga og getur brugðist við út frá þeim upplýsingum. Með Fini geta bankar stigið inn í nýtt tímabil gervigreindaraðstoðarmanna á þeim vettvangi sem þeir treysta nú þegar, án þess að endurbyggja undirliggjandi kerfi og án þess að gögn yfirgefi bankann.“

Fini var þróað í samstarfi við fimm alþjóðlega banka og hefur öryggi og persónuvernd verið í forgrunni frá upphafi. Fjárhagsgögn viðskiptavina fara aldrei úr kerfi bankans heldur eru áfram undir hans eigin öryggis- og aðgangsstýringum.

Samkvæmt Meniga markar Fini tímamót í þróun stafrænnar bankaþjónustu. Í stað hefðbundinna spjallmenna, sem veita almenn svör, fá bankar nú tæki til að bjóða upp á gervigreindaraðstoðarmenn sem skilja raunverulega fjárhagsstöðu hvers viðskiptavinar og geta veitt markvissari ráðgjöf og þjónustu.

Meniga þjónustar yfir 100 milljónir bankaviðskiptavina í meira en 30 löndum og er Fini nýjasta viðbótin við lausnir félagsins á sviði persónusniðinnar bankaþjónustu og gervigreindar.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.