13
.
October
2026

Meistaranemar Háskóla Íslands í vísindaferð til Kríu

Edda Lára Lúðvígsdóttir og Valdimar Halldórsson, fjárfestingastjórar hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu ásamt nemendum Háskóla Íslands

Föstudaginn 9. október kom áhugasamur hópur meistaranema úr Maestro, félagi meistaranema við Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild Háskóla Íslands, í heimsókn til okkar í Nýsköpunarsjóðinn Kríu.

Í heimsókninni fengu nemendur innsýn í starfsemi Kríu, hlutverk sjóðsins í íslensku nýsköpunarumhverfi og hvernig fjármögnun sprota- og nýsköpunarfyrirtækja fer fram. Farið var yfir mikilvægi fjárfestinga á mismunandi stigum í þróun fyrirtækja, tækifæri og áskoranir í nýsköpunarumhverfinu og hvernig Kría styður við uppbyggingu og vöxt íslenskra nýsköpunarfyrirtækja.

Við þökkum Maestro kærlega fyrir komuna og skemmtilega heimsókn!

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.