28
.
March
2026

Með Humble var 70.000 máltíðum bjargað frá ruslinu í fyrra

Hlynur Rafn Guðmundsson, einn stofnenda og eiganda Humble, í viðtali á RÚV

Í fréttum Rúv, föstudaginn 27. mars, var viðtal við Hlyn Rafn Guðmundsson, einn stofnenda og eiganda Humble. Þar kom fram að 70 þúsund máltíðir sem voru á leið í ruslið lentu á matarborðum Íslendinga í fyrra.

Í viðtalinu sýnir Hlynur hvernig fólk getur notað appið til að draga úr matarsóun. Humble er öllum aðgengilegt að kostnaðarlausu og er ætlað að hjálpa fyrirtækjum að minnka matarsóun og um leið bjóða notendum uppá matvöru og ýmislegt annað með afslætti. Þar á meðal bakkelsi og brauð úr bakaríum, rétti frá veitingastöðum, matvöru úr verslunum og snyrtivörur, svo eitthvað sé nefnt. Aðspurður hvers vegna fyrirtæki selji vöru sína í gegnum Humble segir Hlynur umhverfisvitund vera veigamestu ástæðuna.

„Það er leiðinlegt að henda mat í ruslið. Síðan fer mikill kostnaður í að henda í ruslið, það er mikill tekjumissir. Þannig að þarna fá fyrirtækin pening fyrir það sem annars hefði endað í sóun.“

Líkt og margt í nýsköpun varð Humble til á covid-tímanum. Matarsóun á Íslandi var síðast mæld 2022 og reyndist þá vera 60 þúsund tonn á ári, þar af nam sóun frá heimilum, veitingahúsum og smásölum samtals um 30 þúsund tonnum. Hlynur segir í viðtalinu að tölur og gögn Humble bendi til þess að á síðasta ári hafi um 31 tonni af matvöru verið bjargað frá því að lenda í ruslinu með notkun appsins. Hann segir að hagsýnar húsmæður séu stærstu noendurnir en um 32.000 einstaklingar nota nú appið.

Nú bjóða mötuneyti nokkurra stórra fyrirtækja starfsfólki sínu að kaupa afgangsmáltíðir á lokuðu svæði í appinu, mat sem annars væri hent. Hlynur segir jafnframt að stöðugt sé verið að leita nýrra leiða til að draga úr sóun.

Humble var stofnað árið 2023. Félagið er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu en fyrsta aðkoma sjóðsins að því var í gegnum átakið Frumsjóður 2023.

Hér má sjá viðtalið í heild sinni.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.