18
.
June
2026

Lauf / Hjólaferð sýning á Hönnunarsafni Íslands

Lauf / Hjólaferð er opin almenningi í Hönnunarsafni Íslands til 4. október 2026.

Sýningin Lauf / Hjólaferð stendur nú yfir á Hönnunarsafni Íslands þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast ferðalagi íslenska fyrirtækisins Lauf Cycles – frá fyrstu hugmyndum í bílskúr í Grafarvogi til alþjóðlegs framleiðanda reiðhjóla. Sýningin stendur yfir frá 5. maí til 4. október 2026.

Á sýningunni er saga fyrirtækisins rakin í gegnum þróun byltingarkennds fjöðrunargaffals og reiðhjóla sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi. Gestir fá innsýn í hönnunarferlið, frumgerðir, tækninýjungar og þær áskoranir sem fylgja því að byggja upp íslenskt nýsköpunarfyrirtæki á samkeppnismarkaði.

Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á hvernig góð hönnun, þrautseigja og skapandi hugsun geta leitt íslenskt fyrirtæki frá frumgerð að alþjóðlegum árangri. Sýningin býður þannig upp á einstaka innsýn í eitt af athyglisverðustu hönnunar- og nýsköpunarverkefnum Íslands á síðustu árum.

Vara ársins

Fjallahjólið Elja, sem Lauf hannaði og framleiddi, hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2025 í flokki Vara ársins. Sýningin kemur í kjölfar þeirra verðlauna og varpar ljósi á þá nýsköpun og hönnun sem hefur einkennt starfsemi fyrirtækisins. Dómnefnd lagði meðal annars áherslu á hvernig hjólið sameinar tæknilega nýsköpun, framúrskarandi hönnun og sjálfbæra hugsun í einni vöru.

Um Lauf Cycles

Lauf Cycles var stofnað árið 2011 af þeim Benedikt Skúlasyni og Guðbergi Björnssyni og kom fyrst inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2019. Fyrirtækið hefur skapað sér sérstöðu með nýstárlegri notkun koltrefja og einfaldri en árangursríkri hönnun sem sameinar verkfræði, notendaupplifun og fagurfræði.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.