9
.
February
2026

„Landslið“ sprotafyrirtækja í bláu hagkerfi

Mynd frá Morgunblaðinu

Í Morgunblaðinu, laugardaginn 7. febrúar, var viðtal við Þór Sigfússon, stjórnarformann Íslenska sjávarklasans. Íslenski sjávarklasinn, miðstöð þekkingar og nýsköpunar, hefur reglulega tekið saman lista yfir spennandi sprotafyrirtæki í bláa hagkerfinu. Tilgangurinn er að varpa ljósi á þá fjölbreytni í nýsköpun sem hefur orðið til hér á landi og tengist sjávarútvegi eða annarri haftengdri starfsemi. Í ár beinir Íslenski sjávarklasinn sjónum að 20 fyrirtækjum, staðsettum víða á landinu, undir yfirskriftinni „Landslið sprota í bláa hagkerfinu“.

Mikil gróska hefur átt sér stað undanfarin ár innan bláa hagkerfisins á Íslandi um er að ræða fjölbreytta flóru fyrirtækja sem vinnur að því að skapa verðmæti úr hafinu.

Í kynningu á sprotalandsliðinu er fyrirtækjunum skipt eftir þremur megináherslum: „Í fyrsta lagi er það íslensk hátækni sem byggir meðal annars á gervigreind. Í öðru lagi eru það fyrirtæki sem sækja á erlenda heilsumarkaði með neytendavörur. Auk þessara tveggja meginstoða er síðan flóra sprota sem eru að koma með fjölbreyttar nýjungar á ýmsum sviðum í bláa hagkerfinu, “ segir Þór í viðtalinu.

Á listanum er að finna fyrirtæki sem eru í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu og félög sem voru valin til fjárfestinga í nýliðnu átaki sjóðsins, Frumsjóður25.

Ankeri

Hugbúnaðarfyrirtæki sem var þróað til að hjálpa flutningafélögum að safna, greina og nýta gögn um flota sinn, rekstur og sjálfbærni. Markmið fyrirtækisins er að stuðla að betri ákvarðanatöku, aukinni hagkvæmni í rekstri og minni umhverfisáhrifum. Ankeri hefur verið í eignsafni sjóðins síðan árið 2018.

Hefring Marine

Tæknifyrirtæki sem þróar lausnir til að veita skipaflotum rauntímagreiningu á gögnum. Markmið greiningarinnar er að bæta öryggi, auka rekstrarhagkvæmni og draga úr eldsneytisnotkun. Fyrirtækið hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2025 og hefur verið í eignasafni sjóðsins síðan árið 2019.

Marea

Sprotafyrirtæki í líftækni sem vinnur vörur í því skyni að draga úr matarsóun og plastnotkun úr hliðarafurðum annarra líftæknifyrirtækja. Fyrsta vörulínan, ICEBOREA, er pökkunarhúð fyrir grænmeti unnin úr þörungahrati sem myndast eftir astaxanthínframleiðslu. Marea hefur verið í eignasafni sjóðsins síðan árið 2023.

Optitog

Tæknifyrirtæki sem þróar nýstárlega veiðarfæratækni sem lágmarkar snertingu við sjávarbotninn og minnkar óæskilegan afla. Markmið fyrirtækisins er að stuðla að sjálfbærum veiðum og betri nýtingu auðlinda. Optitog er eitt þeirra tíu félaga sem kom inn í Frumsjóð 2023 hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu.

Sea Growth

Íslenskt líftæknifyrirtæki sem vinnur að þróun á vistfiski með frumuræktun, þar sem fiskur er ræktaður beint úr frumum án hefðbundins fiskeldis. Markmið fyrirtækisins er að bjóða sjálfbæra próteinframleiðslu sem mætir vaxandi eftirspurn eftir sjávarfangi. Eitt af ellefu félögum sem kom inn í Frumsjóð 2025 hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu.

Sea Thru

Fyrirtækið þróar stafrænan rekjanleikjavettvang fyrir sjávarútveg. Lausnin veitir yfirsýn yfir virðiskeðjuna í rauntíma og stuðlar að auknu gagnsæi, betri gæðastjórnun og trausti í alþjóðlegum viðskiptum. Eitt af ellefu félögum sem kom inn í Frumsjóð 2025 hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu.

Einstaklega gaman að sjá þessi fyrirtæki á listanum yfir landslið sprotafyrirtækja í bláu hagkerfi.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.